Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum AÞ-Þrif 12. febrúar 2026 11:32 AÞ-Þrif var nýlega tilnefnt sem menntafyrirtæki ársins 2026 hjá Samtökum atvinnulífsins. F.v. eru þau Dagbjört Una Helgadóttir sviðsstjóri Mannauðs, Arnar Þorsteinsson forstjóri, Elísabet Sveinsdóttir mannauðsstjóri og Lilja Bjarney Valdimarsdóttir mannauðssérfræðingur. Vísir/Vilhelm. AÞ-Þrif var eitt þriggja fyrirtækja sem hlaut tilnefningu sem menntafyrirtæki ársins 2026 hjá Samtökum atvinnulífsins. „
Við erum svo stolt af þessum árangri sem við höfum markvisst unnið að undanfarin ár og lítum á þetta sem sönnun á því að fræðsla sé fjárfesting í fólki og hefur beinan rekstrarlegan ávinning,“ segir Dagbjört Una Helgadóttir, sviðsstjóri mannauðs hjá AÞ-Þrif. AÞ-Þrif er hreingerningafyrirtæki sem tók til starfa 2006 og fagnar því 20 ára afmæli sínu í ár. Fyrirtækið býður upp á alhliða þjónustu þegar kemur að þrifum fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Hjá fyrirtækinu starfa um 230 manns og hefur fyrirtækið fest sig í sessi sem eitt öflugasta hreingerningafyrirtæki landsins. AÞ-Þrif var eitt þriggja fyrirtækja sem tilnefnt var til Menntaverðlaun atvinnulífsins.Mynd/Samtök atvinnulífsins. Dagbjört segir að eigendur og starfsfólk fyrirtækisins sé afar hreykið af þessum árangri en hann megi rekja til mikils viðsnúnings sem tekinn var í fræðslumálum fyrirtækisins í upphafi árs 2024 en þá var ákveðið að stækka mannauðssviðið og leggja áherslu á fræðslumál. Fræðsla miðuð við ólíkar hæfniþarfir Flestir millistjórnendur AÞ-Þrif eru innanhússráðningar „Í þessum hópi má finna góða verklega kunnáttu í þrifum og vildum við búa til formlega menntun sem hentaði starfinu. Við sérhönnuðum Þjónustustjóraskóla fyrir þennan hóp í samstarfi við Háskólann á Bifröst. Um er að ræða fyrstu námsleiðina á Íslandi sem er sérhönnuð fyrir þennan hóp af starfsfólki sem þó má finna í flestum þjónustufyrirtækjum hér á landi. Námsleiðin getur því nýst talsverðum hluta af íslenskum vinnumarkaði í framtíðinni.“ Allir þjónustustjórar AÞ-Þrifa útskrifast í mars en Þjónustustjóraskólinn verður einnig í boði fyrir almenna starfsmenn sem vilja þróast í starfi segir Dagbjört. „Þetta er fyrsta skrefið til að ná því markmiði að öllu starfsfólki standi til boða leið til að þróast í starfi. Á þessu ári hefst einnig flokk- og verkstjóraskóli í samstarfi við Bifröst sem er ætlaður þeim störfum sem eru á milli þjónustustjóra og framlínufólks.“ Einnig býður AÞ-Þrif upp á fjölbreytta fræðslu sem er sniðin eftir starfi starfsfólks en um leið er lögð áhersla á fræðslu sem er ætluð að styrkja fólk almennt á íslenskum vinnumarkaði, óháð starfi sínu hjá fyrirtækinu. „Við lítum á þennan flokk sem hluta af samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins. Hér má nefna sem dæmi fræðslu í að skilja launaseðla, íslenskukennslu, námskeið sem snúa að andlegri líðan og boð í verk- og flokkstjóraskólann. Í ljósi þess að allt að fjórðungur starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði er af erlendum uppruna og meirihluta starfsfólks okkar er það líka, þá finnst okkur mikilvægt að vinnuveitendur finni farsæla lausn á fræðsluþörfum þessa hóps.“ AÞ-Þrif er eina íslenska fyrirtækið með þjálfaða og vottaða starfsmenn í gagnaversþrifum. „Við sóttum fræðslu erlendis frá til þess að láta votta fyrirtækið og sækja vottaða fræðslu fyrir okkar starfsfólk. Þetta er dæmi um hvernig fræðsluáætlun ársins þarf að þróast í takt við viðskiptavini og vinnumarkaðinn.“ Mælingar sýna frábæran árangur Dagbjört segir fjölmargar mælingar sýna fram á frábæran árangur í fræðslu hjá AÞ-Þrif. Yfirgnæfandi meirihluti starfsfólks upplifði að þeim hefði verið boðin fræðsla sem hjálpaði þeim og/eða nýttist í starfi. En jákvæð áhrif fræðslu má einnig sjá í ýmsum lykilmælikvörðum mannauðsmála og rekstrar. „Frá 2023 lækkaði veikindaprósenta um heilt prósentustig, starfsmannavelta um 32%, starfsánægja hækkaði um 10% og rekstrarhagnaður hefur aukist.“ Hún segir því niðurstöður sýna með skýrum hætti að fræðsla hjá AÞ-Þrif er ekki bara kostnaður. „Fræðslan er fjárfesting sem skilar sér í aukinni hæfni, fagmennsku, betri líðan og beinum rekstrarlegum ávinningi.“
Mest lesið Tollgæslustjóri hafi lofað MS tollflokkuninni umdeildu Viðskipti innlent Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ Atvinnulíf Bræður selja Vagna og þjónustu eftir 40 ára rekstur Viðskipti innlent Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Viðskipti erlent Spá því að verðbólga fari strax undir fimm prósent Viðskipti innlent Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð Viðskipti innlent „Laxaveisla á Íslandi“ og útlit fyrir umtalsverðan vöxt í framleiðslu Viðskipti innlent Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Samstarf Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Samstarf Fjölga verslunum í Danaveldinu Neytendur Fleiri fréttir Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Greiðsluáskorun Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sjá meira
Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ Atvinnulíf
Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ Atvinnulíf