Finnst ólukkan elta Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2026 07:32 Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, er orðin langþreyttur á því að hlutirnir ganga ekki upp á Anfield þessi misserin. EPA/ADAM VAUGHAN Arne Slot knattspyrnustjóri Liverpool segir að óheppni Liverpool á þessu tímabili sé svo mikil að hún hafi jafnvel náð til nýja leikmannsins Jérémy Jacquet, sem hefur meiðst á öxl áður en hann gengur til liðs við Anfield í sumar.
Liverpool samþykkti 60 milljóna punda samning um kaup á Jacquet frá Rennes á lokadegi félagaskiptagluggans en miðvörðurinn gæti nú þurft að fara í aðgerð á öxl eftir að hafa meiðst þegar hann spilaði með franska liðinu um helgina. „Það er vissulega sú tilfinning,“ sagði Slot þegar hann var spurður hvort Liverpool hefði verið óheppið á þessu tímabili. „Jafnvel þegar við semjum við leikmann og hann er ekki einu sinni að spila fyrir okkur, þá meiðist hann. Stundum líður manni þannig en um leið og þú ferð að hugsa að allt sé óheppni þá kemur það líklega yfir þig líka, svo við ættum að halda þeim hugsunum frá okkur eins mikið og hægt er og einbeita okkur að frammistöðunni og því sem við getum gert til að bæta hana,“ sagði Slot. „En það hversu oft við höfum fengið á okkur mörk seint í uppbótartíma er mun oftar en venjulega. Spurningin er hvort þetta sé óheppni eða hvort það sé okkur að kenna? Ég hef prófað margt. Ég hef gert varnarsinnaðar skiptingar og boltinn fór inn, ég hef haldið áfram að spila með sömu leikmönnum og boltinn fór inn. Við höfum reynt margt. Ég get með sanni sagt að við höfum ekki verið heppnir, það er alveg á hreinu,“ sagði Slot. „Spurningin er hvort við séum óheppnir eða hvort þetta sé hluti af því sem við erum? Það er eitthvað sem við komumst aðeins að á næstu þremur til fjórum mánuðum,“ sagði Slot. Slot viðurkenndi einnig að þetta hafi verið erfiðasta tímabil á ferli hans og játaði að það gæti haft áhrif á leikmannakaup Liverpool í sumar ef ekki tækist að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á þessu tímabili. „Ef við komumst ekki í meistaradeildina, þá hefur þetta klárlega ekki verið ásættanlegt tímabil,“ sagði Slot.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Frakkar vilja Infantino burt Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Handbolti Fleiri fréttir Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira