„Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Stefán Árni Pálsson skrifar 6. febrúar 2026 11:14 Tóti er með hlaðvarpið EIn pæling. Hlaðvarpið Ein pæling með Þórarni Hjartarsyni er sífellt að verða vinsælla. Hér er um mikinn hægrimann að ræða og Sindri Sindrason leit við í morgunkaffi hjá honum í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöldi. Þórarinn er umdeildur og hefur skoðanir sem ekkert endilega allir eru sammála. „
Ég kannski geng harðar heldur en flestir Íslendingar fram í því að ég tel að afskipti ríkisins eigi að vera töluvert minni heldur en þau eru í dag. Jú og kulnun er náttúrulega bara eitthvað kjaftæði. Þetta er náttúrulega orðið bara eitthvað tískufyrirbæri sem að við eigum náttúrulega ekkert efni á. Að sjálfsögðu mun það náttúrulega hverfa síðar meir, að það verður engin kulnun hérna eftir þegar lífskjör fara að rýrna og hlutirnir fara að verða erfiðari,“ segir Þórarinn og telur hann að woke-isminn svokallaði sé á undanhaldi. Erum að koma úr einkennilegum tíma „Ég tel það vera jákvætt. Þú horfir bara á hvað við erum að koma út úr ótrúlega einkennilegum tíma. Bara svona frá 2017 og allt til ársins 2024 til 2025 þar sem svona rétttrúnaðurinn bara náttúrulega tók yfir. Það tókst að rýra lífskjör hérna undir þeim formerkjum að við værum að vera góð við fólk, en ég tel þetta vera nauðsynlegan hlut sem er að gerast núna. Og ég get alveg gert mér grein fyrir því að þetta er erfið fæðing fyrir marga. Svo aftur á móti þá er þetta bara nauðsynlegt svo við höldum í tjáningarfrelsið og annað.“ Tóti finnur fyrir aukinni athygli eftir tilkomu hlaðvarpsins. „Ég fæ sérstaklega mikla athygli frá ungum strákum. Og ég held að það sé sérstaklega út af því að ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir og það séu allt vísindi og þeir séu ómögulegir og þeir einhvern veginn séu, feðraveldið sé búið að tvístrast út um allt samfélagið og allt er ómögulegt út af þeim.“ Hér er um fjölskyldumann að ræða, giftur, faðir tveggja drengja á leikskólaaldri. Hann segir að konan hans sé alls ekki alltaf sammála honum og síður pabbi hans, sem er víst mikill vinstrimaður. En það breytir ekki því að hér er um mikinn hægrimann að ræða. „Annað er náttúrulega bara að hælisleitendakerfinu verði lokað. Það er alveg óumflýjanlegt og það er ekkert út af því að ég vil það, pólitísk eftirspurn er þannig. Ég hef svona pínulitlar áhyggjur af því hvernig hlutir eru að þróast, til dæmis í Evrópu. Hvað við erum ótrúlega lengi að gera okkur grein fyrir því að þetta sé óumflýjanlegt. Þannig að hælisleitendakerfinu verður að sjálfsögðu lokað, en þá þurfum við líka bara að horfa til þess hvernig við ætlum að gera vel við þá hópa sem eru hérna. Út af því að ef að það verður ekki farið í það að skoða þessi mál og teknar svolítið af erfiðum ákvörðunum, þá munum við bara lenda í því sem er að gerast í Þýskalandi núna.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Mest lesið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Fleiri fréttir Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Alan Carr á Íslandi „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Síðasti leynigesturinn opinberaður „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal X-ið bætir við sig Bolla Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu