„Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. febrúar 2026 09:34 Böðvar Böðvarsson var ekki hluti af plönum Jóhanness Karls Guðjónssonar. vísir Böðvar Böðvarsson skrifaði í gær undir samning við ÍA eftir að FH tilkynnti honum að hann væri ekki hluti af framtíðaráformum félagsins.
Böðvar er uppalinn FH-ingur sem hefur tvisvar orðið Íslandsmeistari með félaginu og var varafyrirliði liðsins á síðasta tímabili, en nýi þjálfarinn Jóhannes Karl Guðjónsson hefur ekki not fyrir hann. „Ég var virkilega sár og svekktur fyrstu dagana, út í þessa ákvörðun félagsins að vilja losa mig og koma mér í burtu, en því meira sem maður fjarlægist þessa ákvörðun því meira þarf maður bara að virða hana. Ég hef aldrei kynnst þjálfara á ferlinum sem tekur ákvarðanir sem hann heldur að muni ekki gagnast klúbbnum. Þeir taka alltaf þær ákvarðanir sem þeir halda að komi félaginu áfram. Og ef hann telur að ég sé ekki partur af þeim áætlunum, þá að sjálfsögðu er ég ósammála því, en get skilið að hann þurfi að fá leyfi til að taka þær ákvarðanir.“ Hafnfirðingur í húð og hár Böðvar fór út árið 2018 en sneri aftur heim úr atvinnumennsku árið 2024 og segist hafa hafnað öðrum, fjárhagslega betri, tilboðum til að semja við FH. Sástu fyrir þér að enda ferilinn í Hafnarfirðinum? „Ég sá það fyrir mér frá því að ég skrifaði undir fyrst, það var aldrei nein spurning í mínum huga hvar ég vildi spila og hvar mig langaði til að enda ferilinn. En nú kemur inn þjálfari sem er kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar hafa verið með, til dæmis Heimir [Guðjónsson] sem er mjög góður vinur minn. Kannski er það bara hollt fyrir klúbbinn til framtíðar, að það komi inn maður sem er tilbúinn að taka mjög stórar ákvarðanir. Hann [Jóhannes Karl] er sannarlega tilbúinn í það og svo verður framtíðin að bera það hvort hún hafi verið rétt eða ekki.“ Heillandi að vera með háleit markmið Nú liggur leið Böðvars upp á Skaga, eftir að hafa rætt við önnur félög skrifaði hann í gær undir tveggja ára samning við ÍA. „Í grunninn fannst mér þeir bara setja mestu áhersluna á að fá mig. Ingimar [Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri ÍA] var á bakinu á mér stanslaust í heila viku. Við enda dagsins leist mér best á það verkefni. Markmiðin eru bara að koma ÍA fyrst og fremst í Evrópukeppni, og vera að berjast á toppnum. Það eru markmið félagins og það er mjög heillandi að vera að fara í þannig umhverfi.“ Fjallað var um félagaskipti Böðvars í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan. Alvöru baráttu um bakvarðarstöðuna Vinstri bakvörðurinn Böðvar ræddi einnig við Vísi um sitt hlutverk í Skagaliðinu, sem spilar undir stjórn Lárusar Orra Sigurðarsonar. ÍA er búið að sækja marga öfluga leikmenn í vetur, þeirra á meðal Guðmund Þórarinsson, Gumma Tóta, sem getur spilað sem vinstri bakvörður. „Ég býst nú við því að Gummi Tóta verði meira hugsaður sem miðjumaður, en ég svosem veit það ekki. Svo ertu líka með Johannes Vall þarna, sem er búinn að vera einn besti vinstri bakvörður deildarinnar síðustu ár, þannig að það er mikil samkeppni. En ég hef aldrei verið hræddur við samkeppni, því meiri samkeppni sem er innan liðs því meira líkur á að ná árangri.“
Mest lesið Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Íslenski boltinn Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Fótbolti Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Körfubolti Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Fótbolti Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Sport Af botninum og varð Evrópumeistari eftir 324 daga fjarveru vegna meiðsla Sport Fleiri fréttir Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld „Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ „Búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku“ Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 1-3 | Langþráður sigur Brazell „Vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag“ „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Fannst ÍBV brjóta fyrir vítadóminn „Jákvætt að tengja saman tvo sigra“ „Ákvörðun dómarans verðskuldar ekki komment“ Uppgjörið: KA - FH 0-1 | Úr fallsæti og auka á þjáningar norðanmanna Uppgjörið: Víkingur - ÍBV 2-2 | Annað misstig meistaranna Uppgjörið: ÍA - Þór 2-0 | Þrír í röð án taps hjá ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 1-0 | Stjarnan heldur áfram að þoka sér upp töfluna Árni gekk í það heilaga og fékk frí Von Völsungs lifir góðu lífi Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Framherjaleit Breiðabliks lokið Þrótti mistókst að fara á toppinn Erlingur Agnars í FH Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Sjá meira