Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 16:02 Salóme Hollanders listakona er að opna sýningu. Vísir/Anton Brink „Ég er hugfangin af hestum enda eru þeir einstaklega falleg dýr,“ segir listakonan og vöruhönnuðurinn Salóme Hollanders sem hefur algjörlega slegið í gegn með listræna spegla sína og einstök listaverk.
Þann 6. febrúar klukkan 17:00 opnar hún einkasýningu á eigin verkum í galleríinu HERMA á Hverfisgötu 4. Sýningin ber titilinn MÓSKA sem vísar í mistur eða þokuslæðu og draumkennt landslag. View this post on Instagram A post shared by HERMA (@herma_rvk) Salóme er fædd árið 1996 og er búsett í Reykjavík en hún ólst upp fyrir norðan. „Sýningin fjallar um skynjun og túlkun á landslagi í gegnum form og liti. Hvernig form eiga í samspili innan strigans og skapa í gegnum það litlar sögur innan hvers verks. Innblásturinn á að mögu leyti rætur að rekja til æskunnar þar sem ég ólst upp í sveit á Norðurlandi. Ég sæki í eigin minningar og verkin taka því oft á sig dulrænan blæ. Það er smá eins og maður sé ekki alveg viss hvar maður er, en staðurinn er samt á einhvern hátt mjög kunnuglegur,“ segir Salóme um sýninguna og heldur áfram: „Ég hef mikinn áhuga á því hvernig umhverfi okkar endurmótast í minningum, hvernig landslag leysist upp í form og raðast aftur saman í huganum þar til það verður að tilfinningu frekar en raunverulegum stað. Í verkunum má sjá glitta í hest hér og þar. Ég ólst upp meira eða minna á hestbaki og hugfangin af hestum enda einstaklega falleg dýr og eru þeir hluti af persónulegu táknsæi innan verkanna.“ Sýningin stendur til 15. febrúar.
Myndlist Menning Sýningar á Íslandi Mest lesið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira