Lífið

Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Olivia Dean, Billie Eilish og Bad Bunny eru meðal þeirra listamanna sem fengu Grammy-verðlaun sem nýttu tækifærið til að senda skilaboð.
Olivia Dean, Billie Eilish og Bad Bunny eru meðal þeirra listamanna sem fengu Grammy-verðlaun sem nýttu tækifærið til að senda skilaboð. Getty

Bad Bunny, Lady Gaga, Kendrick Lamar, Lola Young og Olivia Dean voru meðal þeirra sigursælustu á Grammy-tónlistarverðlaunahátíðinni sem fór fram í Los Angeles í nótt. Laufey Lín Jónsdóttir nældi sér jafnframt í sín önnur Grammy-verðlaun fyrir plötuna A Matter of Time. Mótmæli gegn ICE, innflytjenda- og tollaeftirliti Bandaríkjanna, voru fyrirferðarmikil á hátíðinni þar sem margir þeirra listamanna sem viðstaddir voru nýttu þakkarræður sínar, viðtöl eða báru barmmerki í mótmælaskyni gegn aðgerðum stjórnvalda.

Lista yfir allar tilnefningar og sigurvegara Grammy-verðlaunanna 2026 má finna neðar í fréttinni.

Bad Bunny, sem treður upp í hálfleik Ofurskálarinnar næstu helgi, tryggði sér þrenn verðlaun, fyrir plötu ársins, bestu plötu í flokki música urbana, og fyrir bestu tónlistarframkomu á heimsvísu. 

„Áður en ég þakka Guði, þá ætla ég að segja ICE out,“ sagði Bad Bunny meðal annars þegar hann veitti verðlaununum viðtöku. „Við erum ekki villimenn, við erum ekki skepnur, við erum ekki óvelkomnar verur, við erum manneskjur og við erum Bandaríkjamenn,“ hélt hann áfram. „Ef við berjumst þá gerum við það með ást. Við hötum þau ekki, við elskum fólkið okkar, við elskum fjölskyldur okkar og þannig á að gera það, með ást.“

Bad Bunny kom sá og sigraði og nýtti tækifærið í þakkarræðunni til að mótmæla aðgerðum stjórnvalda í Bandaríkjunum gegn innflytjendum.Getty/Johnny Nunez

Meðal annarra listamanna sem einnig létu í sér heyra með einum eða öðrum hætti voru Justin Bieber, Carole King, Olivia Dean og Billie Eilish. Sú síðastnefnda fékk Grammy fyrir lag ársins fyrir lag sitt Wildflower. 

„Enginn er ólöglegur í stolnu landi,“ sagði Eilish meðal annars í sinni þakkarræðu. „Það er mjög erfitt að vita hvað maður á að segja eða gera akkúrat núna… við verðum að halda áfram að berjast og tala upphátt og mótmæla.“

Billie Eilish í góðum félagsskap Justins og Hailey Bieber. Þarna má sjá glitta í barmmerkin sem margir báru í mótmælaskyni gegn ICE.Getty/Kevin Mazur

Lamar setti nýtt met og Gaga talaði til kvenna

Olivia Dean var valin besti nýi listamaðurinn en hún nýtti jafnframt tækifærið til að deila sínum skilaboðum. „Ég er hér sem barnabarn innflytjenda. Ég er afurð hugrekkis og mér finnst að þetta fólk eigi skilið að þeim sé fagnað,“ sagði Dean meðal annars.

Kendric Lamar skráði sig á spjöld sögunnar eftir gærkvöldið, en hann er nú orðinn sigursælasti rapparinn í sögu Grammy-verðlaunanna, eftir að hann tryggði sér fimm verðlaun til viðbótar. Alls hefur Lamar hlotið 27 Grammy-verðlaun og er þannig kominn fram úr rapparanum Jay Z sem fyrir gærkvöldið var sigursælasti rapparinn á Grammy.

Enginn annar rappari hefur tryggt sér jafn mörg Grammy-verðlaun og Kendrick Lamar.Getty/Kevin Winter

Söngkonan Kehlani, sem hlaut tvenn verðlaun í flokki R&B tónlistar fyrir lag sitt Folded lét ekki heldur sitt eftir liggja í gagnrýni á ICE. „Mig langar að segja fokk ICE. Ég held að allir — við erum of valdamikill hópur af fólki hér í sama rými á sama tíma til að koma ekki með einhvers konar yfirlýsingu í landinu okkar, það er svo heilalaust fyrir mér,“ sagði Kehlani.

Lady Gaga hlaut einnig tvenn verðlaun en hún nýtti tækifærið til að tala til kvenna í bransanum. „Ég vil bara segja fyrir konur í tónlist, ég veit að stundum er maður í hljóðverinu með fullt af gaurum og það getur verið erfitt, en ég hvet ykkur til að hlusta alltaf á ykkur sjálfar,“ sagði Gaga.

Lady Gaga glæsileg á rauða dreglinum.Getty/ Amy Sussman

Þessi hlutu Grammy-verðlaun 2026 í helstu flokkum

Listinn byggir á samantekt Guardian. Sigurvegarinn í hverjum flokki er feitletraður.

Plata ársins

Bad Bunny – Debí Tirar Más Fotos

Justin Bieber – Swag

Sabrina Carpenter – Man’s Best Friend

Clipse – Let Got Sort Em Out

Lady Gaga – Mayhem

Kendrick Lamar – GNX

Leon Thomas – Mutt

Tyler, the Creator – Chromakopia

Plötuupptaka ársins

Bad Bunny – DtMF

Sabrina Carpenter – Manchild

Doechii – Anxiety

Billie Eilish – Wildflower

Lady Gaga – Abracadabra

Kendrick Lamar with SZA – Luther

Chappell Roan – The Subway

Rosé & Bruno Mars – APT.

Lag ársins

Lady Gaga – Abracadabra

Doechii – Anxiety

Rosé & Bruno Mars – APT.

Bad Bunny – DtMF

Huntr/x – Golden

Kendrick Lamar with SZA – Luther

Sabrina Carpenter – Manchild

Billie Eilish – Wildflower

Besti sóló-popp flutningurinn

Justin Bieber – Daisies

Sabrina Carpenter – Manchild

Lady Gaga – Disease

Chappell Roan – The Subway

Lola Young – Messy

Besta poppsöngplata

Justin Bieber – Swag

Sabrina Carpenter – Man’s Best Friend

Miley Cyrus – Something Beautiful

Lady Gaga – Mayhem

Teddy Swims – I’ve Tried Everything But Therapy (Part 2)

Besta hefðbundna poppplatan

Laila Biali – Wintersongs

Laufey – A Matter of Time

Jennifer Hudson – The Gift of Love

Barbra Streisand – The Secret of Life: Partners, volume 2

Elton John & Brandi Carlile – Who Believes in Angels?

Lady Gaga – Harlequin

Besta nútímakántríplatan

Kelsea Ballerini – Patterns

Tyler Childers – Snipe Hunter

Eric Church – Evangeline v the Machine

Jelly Roll – Beautifully Broken

Miranda Lambert – Postcards from Texas

Besta música urbana platan

Bad Bunny – Debí Tirar Más Fotos

Feid – Ferxxo Vol X: Sagrado

J Balvin – Mixteip

Nicki Nicole – Naiki

Trueno – EUB Deluxe

Yandel – Sinfónico (En Vivo)

Besti nýji listamaðurinn

Olivia Dean

Katseye

The Marias

Addison Rae

Sombr

Leon Thomas

Alex Warren

Lola Young

Besta rappplatan

Clipse – Let God Sort Em Out

Glorilla – Glorious

JID – God Does Like Ugly

Kendrick Lamar – GNX

Tyler, the Creator – Chromakopia

Besta dans-popp upptakan

Selena Gomez & Benny Blanco – Bluest Flame

Lady Gaga – Abracadabra

Zara Larsson – Midnight Sun

Tate McRae – Just Keep Watching

PinkPantheress – Illegal

Besti rapp flutningurinn

Cardi B – Outside

Clipse – Chains & Whips (ft Kendrick Lamar & Pharrell Williams)

Doechii – Anxiety

Kendrick Lamar – TV Off (ft Lefty Gunplay)

Tyler, the Creator – Darling, I (ft Teezo Touchdown)

Besti sóló-kántrí flutningurinn

Tyler Childers – Nose on the Grindstone

Shaboozey – Good News

Chris Stapleton – Bad As I Used to Be

Zach Top – I Never Lie

Lainey Wilson – Somewhere Over Laredo

Besta rapplagið

Doechii – Anxiety

Clipse, Pusha T & Malice ft John Legend & Voices of Fire – The Birds Don’t Sing

Tyler, the Creator ft GloRilla, Sexyy Red & Lil Wayne – Sticky

GloRilla – TGIF

Kendrick Lamar ft Lefty Gunplay – TV Off

Besti popp dúett- eða hópflutningur

Cynthia Erivo & Ariana Grande – Defying Gravity

Huntr/x – Golden

Katseye – Gabriela

Rosé & Bruno Mars – APT.

SZA Featuring Kendrick Lamar – 30 for 30

Besta R&B platan

Givēon – Beloved

Coco Jones – Why Not More?

Ledisi – The Crown

Teyana Taylor – Escape Room

Leon Thomas – Mutt

Besta rokkplatan

Deftones – Private Music

Haim – I Quit

Linkin Park – From Zero

Turnstile – Never Enough

Yungblud – Idols

Besta dans/elektró platan

FKA twigs – Eusexua

Fred Again – Ten Days

PinkPantheress – Fancy That

Rüfüs Du Sol – Inhale/Exhale

Skrillex – F U Skrillex You Think Ur Andy Warhol But Ur Not!! <3

Besti rokk flutningur

Amyl and the Sniffers – U Should Not Be Doing That

Linkin Park – The Emptiness Machine

Turnstile – Never Enough

Hayley Williams – Mirtazapine

Yungblud – Changes (Live from Villa Park, Back to the Beginning)

Besti metal flutningur

Dream Theater – Night Terror

Ghost – Lachryma

Sleep Token – Emergence

Spiritbox – Soft Spine

Turnstile – Birds

Besti R&B flutningur

Justin Bieber – Yukon

Chris Brown – It Depends (ft Bryson Tiller)

Kehlani – Folded

Leon Thomas – Mutt

Summer Walker – Heart of a Woman

Besti hefðbundni R&B flutningur

Durand Bernarr – Here We Are

Lalah Hathaway – Uptown

Ledisi – Love You Too

SZA – Crybaby

Leon Thomas – Vibes Don’t Lie

Besta R&B lagið

Kehlani – Folded

Summer Walker – Heart of a Woman

Chris Brown ft Bryson Tiller – It Depends

Durand Bernarr – Overqualified

Leon Thomas – Yes It Is

Besta óhefðbundna tónlistarplatan

Bon Iver – Sable, Fable

The Cure – Songs of a Lost World

Tyler, the Creator – Don’t Tap the Glass

Wet Leg – Moisturizer

Hayley Williams – Ego Death at a Bachelorette Party

Besta hefðbundna kántríplatan

Charley Crockett – Dollar a Day

Lukas Nelson – American Romance

Willie Nelson – Oh What a Beautiful World

Margo Price – Hard Headed Woman

Zach Top – Ain’t In It for My Health

Besti alþjóðlegi tónlistarflutningurinn

Bad Bunny – EoO

Ciro Hurtado – Cantando en el Camino

Angélique Kidjo – Jerusalema

Yeisy Rojas – Inmigrante Y Que?

Shakti – Shrini’s Dream (live)

Anoushka Shankar – Daybreak (ft Alam Khan & Sarathy Korwar)

Besta rokklagið

Nine Inch Nails – As Alive as You Need Me to Be

Sleep Token – Caramel

Hayley Williams – Glu

Turnstile – Never Enough

Yungblud – Zombie

Besta kántrílagið

Tyler Childers – Bitin’ List

Shaboozey – Good News

Zach Top – I Never Lie

Lainey Wilson – Somewhere Over Laredo

Miranda Lambert and Chris Stapleton – A Song to Sing

Besti óhefðbundni tónlistarflutningurinn

Bon Iver – Everything is Peaceful Love

The Cure – Alone

Turnstile – Seein’ Stars

Wet Leg – Mangetout

Hayley Williams – Parachute

Besta safnplatan með tónlist fyrir sjónræna miðla

A Complete Unknown

F1 The Album

Kpop Demon Hunters

Sinners

Wicked

Besta tónlistarmyndbandið

Sabrina Carpenter – Manchild

Clipse – So Be It

Doechii – Anxiety

OK Go – Love

Sade – Young Lion

Besta lagið samið fyrir sjónræna miðla

Nine Inch Nails – As Alive as You Need Me to Be (From Tron: Ares)

Huntr/x – Golden (from KPop: Demon Hunters)

Miles Caton – I Lied to You (From Sinners)

Elton John and Brandi Carlile – Never Too Late (From Elton John: Never Too Late)

Jayme Lawson – Pale, Pale Moon (From Sinners)

Rod Wave – Sinners (From Sinners)

Besta latínó poppplatan

Rauw Alejandro – Cosa Nuestra

Andrés Cepeda – Bogotá (Deluxe)

Karol G – Tropicoqueta

Natalia Lafourcade – Cancionera

Alejandro Sanz – ¿Y ahora qué?

Best fólk platan

Rhiannon Giddens & Justin Robinson – What Did the Blackbird Say to the Crow

Patty Griffin – Crown of Roses

I’m With Her – Wild and Clear and Blue

Jason Isbell – Foxes in the Snow

Jesse Welles – Under the Powerlines (April 24 – September 24)

Best dans/elektró upptakan

Disclosure & Anderson Paak – No Cap

Fred again, Skepta & PlaqueBoyMax – Victory Lap

Kaytranada – Space Invader

Skrillex – Voltage

Tame Impala – End of Summer

Besti afríski tónlistarflutningurinn

Burna Boy – Love

Davido ft Omah Lay – With You

Eddy Kenzo & Mehran Matin – Hope & Love

Ayra Starr feat. Wizkid – Gimme Dat

Tyla – PUSH 2 START

Besti jazzflutningurinn

Lakecia Benjamin – Noble Rise (ft Immanuel Wilkins & Mark Whitfield)

Chick Corea, Christian McBride & Brian Blade – Windows (live)

Samara Joy – Peace Of Mind / Dreams Come True

Michael Mayo – Four

Nicole Zuraitis, Dan Pugach, Tom Scott, Idan Morim, Keyon Harrold & Rachel Eckroth – All Stars Lead to You (live)

Besti hljómsveitarflytjandi

Michael Repper, conductor (National Philharmonic) – Coleridge-Taylor: Toussaint L’Ouverture; Ballade Op 4; Suites From 24 Negro Melodies

Andris Nelsons, conductor (Boston Symphony Orchestra) – Messiaen: Turangalîla-Symphonie

Gustavo Dudamel, conductor (Simón Bolívar Symphony Orchestra Of Venezuela) – Ravel: Boléro, M 81

Yannick Nézet-Séguin, conductor (The Philadelphia Orchestra) – Still & Bonds

Esa-Pekka Salonen, conductor (San Francisco Symphony) – Stravinsky: Symphony in Three Movements

Besti djassflutningur

Lakecia Benjamin – Noble Rise (ft Immanuel Wilkins & Mark Whitfield)

Chick Corea, Christian McBride & Brian Blade – Windows (live)

Samara Joy – Peace Of Mind / Dreams Come True

Michael Mayo – Four

Nicole Zuraitis, Dan Pugach, Tom Scott, Idan Morim, Keyon Harrold & Rachel Eckroth – All Stars Lead to You (live)

Besta gamanplatan

Bill Burr – Drop Dead Years by Bill Burr

Sarah Silverman – PostMortem by Sarah Silverman

Ali Wong – Single Lady by Ali Wong

Jamie Foxx – What Had Happened Was … by Jamie Foxx

Nate Bargatze – Your Friend, Nate Bargatze

Besti melódíski rappflutningurinn

Fridayy ft Meek Mill – Proud Of Me

JID ft Ty Dolla $ign & 6Lack – Wholeheartedly

Kendrick Lamar with SZA – luther

Terrace Martin & Kenyon Dixon Featuring Rapsody – WeMaj

PARTYNEXTDOOR & Drake – SOMEBODY LOVES ME

Framleiðandi ársins

Dan Auerbach

Cirkut

Dijon

Blake Mills

Sounwave

Lagahöfundur ársins

Amy Allen

Edgar Barrera

Jessie Jo Dillon

Tobias Jesso Jr

Laura Veltz






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.