„Við reyndum og það bara gekk ekki“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. janúar 2026 22:01 Fyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon var súr og svekktur í leikslok. Vísri/Vilhelm Ómar Ingi Magnússon var eðlilega niðurlútur eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Dönum í undanúrslitum á EM í kvöld.
Ómar, líkt og margir aðrir, átti góðan leik sóknarlega fyrir Ísland í kvöld, en það dugði ekki til. Niðurstaðan varð þriggja marka tap, 31-28, og Ísland leikur því um 3. sæti EM á sunnudaginn. „Þeir bara spila sinn leik og eru sterkir. Mér fannst við spila heilt yfir nokkuð vel. Við vorum náttúrulega í erfiðum aðstæðum og kannski voru einhver atriði sem féllu ekki með okkur að okkar mati. En örugglega fór þetta bara eins og það átti að fara,“ sagði Ómar í leikslok. Danska liðið var með um það bil tvöfalt fleiri löglegar stöðvanir en íslenska liðið í kvöld, en Ómar segist ekki pæla mikið í því. „Við erum ekki mikið að pæla í því. Við erum meira að pæla í hvernig sóknirnar enda. Þeir eru bara þéttir varnarlega, en mér fannst við líka vera nokkuð solid í vörn. En þetta eru ekki alveg eins leikstílar og það kannski skýrir það.“ Ómar vildi þó ekki gefa of mikið upp þegar hann var spurður að því hvort einhverjir af þessum dómum hefðu mátt innihalda meiri refsingu. „Það eru alltaf einhver vafaatriði, en það er bara eins og það er. Þeir eru örugglega ekki sáttir með einhver atriði. En þetta er allt í lagi.“ Þá var Ómar alveg með það á hreinu hvað hefði orðið til þess að Danir náðu upp fjögurra marka forskoti. „Við kannski bara klúðrum og þeir skora. Þetta er bara svolítið þannig og þetta eru smáatriði hér og þar. Svo fá lið svona meðbyr og það kemur einhver orka í þá og höllin tryllist. Það er kannski bara það og þú mátt eiginlega ekki hleypa þeim í það. Þegar þetta er komið í 2-3 mörk þá verður þetta erfitt, en við reyndum og það bara gekk ekki.“ Framundan hjá íslenska liðinu er bronsleikur gegn Króatíu á sunnudaginn og Ómar segir að liðið geti tekið ýmislegt jákvætt með sér úr leik kvöldsins. „Mér fannst við spila góðan leik og við vorum frekar solid bara heilt yfir þannig við mætum klárir eftir tvo daga,“ sagði Ómar að lokum. Klippa: Ómar Ingi eftir tapið gegn Dönum
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Fótbolti Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Enski boltinn Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Íslenski boltinn Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Fótbolti Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Golf Fleiri fréttir Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira