Vilja þagga niður í 14 þúsund Dönum Valur Páll Eiríksson skrifar 30. janúar 2026 15:00 Gidsel og félagar fá mikinn stuðning úr stúkunni í Herning. Sina Schuldt/picture alliance via Getty Images Íslendingar verða í miklum minnihluta þegar strákarnir okkar mæta Dönum í undanúrslitum á EM karla í handbolta í Herning í kvöld. Markmið strákanna okkar er að þagga niður í þúsundum stuðningsfólks.
Íslendingar verða ekki mikið meira en 200 á leik kvöldsins í höll sem tekur tæplega 15 þúsund manns í sæti. Danir verða þar í miklum meirihluta og munu styðja sína menn til sigurs. Klippa: Vilja þagga niður í 14 þúsund Dönum Besti leikur Íslands á þessu móti fór fram við svipaðar aðstæður, þegar þeir unnu Svía á þeirra heimavelli í Malmö með átta marka mun á sunnudaginn var. Þá voru að vísu fleiri íslenskir stuðningsmenn í stúkunni og þeir eignuðu sér hreinlega höllina. Nú er markmið strákanna okkar að endurtaka leikinn og þagga niður í heimamönnum. „Já, það er rétt hjá þér. Það væri auðvitað óskandi. En það þarf allt að smella. Það small allt á móti Svíum. Það er vonandi að það geri það líka gegn Dönum,“ segir Gísli Þorgeir Kristjánsson og liðsfélagi hans Bjarki Már Elísson er á sama máli. „Það er auðvitað markmiðið. Það er verðugt en við mætum með hökuna upp, kassann úti og leggjum allt í þetta,“ segir Bjarki sem trúir því að Ísland geti komist í úrslit. „Ég hef trú. Í öll þessi tíu skipti hef ég alltaf haft trú á því að við værum að fara í úrslit og það er ekkert breytt núna.“ Snorri Steinn Guðjónsson er á sama máli. Allt þurfti að smella svo af því verði. „Það væri rosa gott og gaman. Svipuð frammistaða væri mjög vel þegin. En ég held við þurfum að taka eitt skref í viðbót og vera enn betri. Að kalla fram enn betri hliðar á okkar leik. Ég held það sé alveg innistæða fyrir því. Auðvitað þurfum við að kafa djúpt en við höldum að við getum gert það,“ segir Snorri Steinn.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Fótbolti Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Fótbolti Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Enski boltinn Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Fótbolti Fleiri fréttir Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira