Misjöfn dagsverk á fyrstu æfingu í Herning Valur Páll Eiríksson skrifar 29. janúar 2026 17:15 Snorri Steinn var léttur á blaðamannafundi fyrir æfinguna og einnig þegar út á gólf var komið. Vísir/Vilhelm Landslið karla í handbolta æfði í keppnishöllinni Boxen í Herning í dag þar sem liðið mætir heimsmeisturum Dana í undanúrslitum á EM á morgun.
Gengið hefur á ýmsu frá því að Ísland vann Slóveníu í gær til að tryggja sæti sitt í undanúrslitum. Menn voru á bleiku skýi eftir leik í gær en í dag var ferðadagur og við tók rúmlega þriggja klukkustunda rútuferð til Herning á Jótlandi. Miðamál hafa verið mikið til umræðu en einhverjir leikmanna gátu ekki boðið þeim fjölskyldumeðlimum sem þeir vildu vegna fárra miða sem buðust frá Evrópska handknattleikssambandinu, EHF. Sambandið sætti einnig gagnrýni Dags Sigurðssonar, landsliðsþjálfara Króatíu, vegna töluvert minni hvíldartíma sem hans liði bauðst í samanburði við andstæðingana. Sama staða er uppi hjá Íslandi sem hlaut minni hvíld en Danir. Strákarnir voru þó léttir á æfingu dagsins og eftirvæntingin mikil fyrir leiknum á morgun. Enda í fyrsta sinn í 16 ár sem Ísland kemst á þetta stig. Viggó Kristjánsson og Haukur Þrastarson hituðu upp á þrekhjólum á meðan Ómar Ingi Magnússon sat á nuddbekk. Aðrir fóru í skallatennis og gleðin mikil. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var með myndavélina á lofti á æfingunni í Herning. Björgvin Páll í skallatennis.Vísir/Vilhelm Orri Freyr ferskur.Vísir/Vilhelm Brosað hringinn í Herning.Vísir/Vilhelm Eitthvað áhugavert hefur átt sér stað hinu megin í salnum.Vísir/Vilhelm Ómar Ingi lá á nuddbekk meðan aðrir spörkuðu bolta.Vísir/Vilhelm Handboltarnir voru einnig til staðar.Vísir/Vilhelm Arnar að bjarga málunum í skallatennisnum.Vísir/Vilhelm
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Fótbolti Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Fótbolti „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Íslenski boltinn Bein útsending: Arnar velur vesturfara Fótbolti Hótar að mæta aldrei aftur eftir „sorglega gagnrýni“ Sport „Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“ Sport Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Handbolti Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Handbolti Fleiri fréttir „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram „Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Donni drjúgur og Elvar með frábæran leik Selfoss hafði sætaskipti við Stjörnuna á botninum Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Stiven flaug áfram í átta liða úrslit Teitur og Elliði unnu Íslendingaslaginn Haukur og félagar eyðilögðu hátíðarhöld Guðmundur og Ísak að missa af úrslitakeppninni Tvisvar markakóngur fyrir tvítugt „Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt“ „Þórsarinn er svo geggjaður“ Þór - KA 31-31 | Allt jafnt í æsispennandi Akureyrarslag FH - ÍR 34-28 | FH sendi ÍR niður um deild Sjá meira