Danmörk, Frakkland eða Þýskaland bíða í undanúrslitum Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. janúar 2026 16:38 Strákarnir okkar bíða eftir úrslitum úr öðrum leikjum til að vita hverjum þeir mæta í undanúrslitum. vísir / vilhelm Strákarnir okkar eru komnir í undanúrslit en hverjum munu þeir mæta þar? Það liggur ekki ljóst fyrir fyrr en í kvöld en ýmsir möguleikar eru í stöðunni.
Undanúrslitaleikirnir fara fram á föstudag klukkan 16:45 og 19:30. Strákarnir okkar munu spila við Danmörku, Frakklandi eða Þýskaland í undanúrslitum, en það fer eftir úrslitum dagsins hverjum nákvæmlega. Tveir leikir eru að hefjast núna klukkan fimm. Króatía mætir Ungverjalandi, sem er úr leik, og í hinum milliriðlinum mætast Frakkland og Þýskaland í úrslitaleik. Tveir leikir fara svo fram í kvöld. Svíþjóð mætir Sviss, sem er úr leik, og í hinum milliriðlinum mætast Danmörk, sem er búið að tryggja sig áfram, og Noregur, sem er úr leik. Spilað verður á víxl, annað sætið mætir fyrsta sætinu úr hinum riðlinum og öfugt. Hvað þurfa Króatar að gera? Ef Króatía vinnur gegn Ungverjalandi endar Króatía í efsta sæti í milliriðlinum. Ef Króatía tapar þeim leik þá endar Ísland í efsta sæti milliriðilsins, og Svíþjóð getur með sigri slegið Króatíu úr leik. Þýskalandi dugir jafntefli í úrslitaleik gegn Frakklandi Ef Þýskaland vinnur eða gerir jafntefli gegn Frakklandi kemst Þýskaland áfram. Ef Þýskaland tapar þeim leik fer Frakkland áfram í undanúrslit. Þá væri líka komin upp sú staða, ef Þýskaland vinnur, að Danmörk gæti „ráðið“ hvaða liði þeir mæta í undanúrslitum, að því marki sem þeir ráða úrslitunum í leik sínum við Noreg. Danmörk gæti tapað þeim leik, ef Þýskaland vinnur, og viljandi lent í öðru sæti. Ef Frakkland vinnur endar Danmörk í efsta sæti sama hvað. Á Svíþjóð einhvern möguleika? Svíþjóð bíður og vonar að Króatía tapi eða geri jafntefli á móti Ungverjalandi. Þá geta Svíarnir tekið annað sæti milliriðilsins með sigri gegn Sviss í kvöld.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Fótbolti Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Íslenski boltinn Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Enski boltinn Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Fótbolti Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Golf Fleiri fréttir Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira