Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. janúar 2026 10:25 Kai Rooney er vinsæll meðal stuðningsmanna Manchester United. James Gill - Danehouse/Getty Images Kai Rooney, sonur Manchester United goðsagnarinnar Wayne, fetaði í fótspor föður síns og spilaði með Manchester United á Old Trafford í gærkvöldi, í sigri gegn Derby County í FA bikar ungmenna.
Darren Fletcher er aftur orðinn þjálfari u18 ára liðsins og veitti Kai Rooney traustið. Sextán ára gamli hægri kantmaðurinn kom inn á 99. mínútu í framlengingu þegar staðan var markalaus. Sjálfsmark hjá Derby County og mark frá Chido Obi með aðeins þriggja mínútna millibili skilaði United síðan sigrinum. Derby minnkaði muninn undir lokin en það var of seint. Um tvö þúsund stuðningsmenn risu á fætur og sungu: „Rooney, Rooney!“ þegar Kai komst í snertingu við boltann í fyrsta sinn og sólaði varnarmann. Then and now. Proud of you Kai ❤️ pic.twitter.com/S9WJ8C8Ky9— Wayne Rooney (@WayneRooney) January 24, 2026 Þetta var tilfinningarík stund fyrir Rooney fjölskylduna en faðirinn Wayne og móðirin Coleen voru uppi í stúku ásamt öðrum börnum sínum þegar elsti sonurinn spilaði í fyrsta sinn í Leikhúsi Draumanna. Kai Rooney is playing at Old Trafford for the first time.Great moment for mum and dad, who are here watching on #mufc pic.twitter.com/UHtHHZ9WaE— Nathan Salt (@NathSalt1) January 23, 2026 Wayne Rooney sat reyndar ekki með fjölskyldunni heldur við hlið Michael Carrick og Jonny Evans í stjórnarsvítunni. Kai Rooney made his first competitive appearance at Old Trafford as Man Utd U18s beat Derby U18s 2-1 in the FA Youth Cup, with Wayne Rooney and Michael Carrick watching on from the stands 👀✨ pic.twitter.com/lo2avS62Ls— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) January 23, 2026 Kai Rooney spilar vanalega fyrir u16 ára lið Manchester United en er strax byrjaður að stíga sín fyrstu skref með u18 ára liðinu og hefur skorað tvö mörk í ensku ungmenna úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn Eiginkona þjálfara hjá Chiefs skotin Sport Mbappé sár eftir HM Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Íslenski boltinn Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Körfubolti Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Samstarf við rússneskt veðmálafyrirtæki varð Pirlo að falli Fótbolti Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Sjá meira