Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2026 15:17 Samantha Smith, Birta Georgsdóttir og Andrea Rut Bjarnadóttir eru allar horfnar á braut og verða ekki með Breiðabliki í Bestu deildinni 2026. Vísir/Anton Brink Þrír af öflugustu sóknarleikmönnum Íslandsmeistara Breiðabliks í kvennafótboltanum eru horfnir af braut og reyna fyrir sér í atvinnumennsku. Besta lið Bestu deildar kvenna þarf því að fylla í stór skörð næsta sumar.
Í gær sögðu Blikar frá því að Andrea Rut Bjarnadóttir væri farin til Anderlecht í Belgíu og að Birta Georgsdóttir, besti leikmaður bestu deildar kvenna 2025, væri búin að semja við ítalska félagið Genoa. Áður hafði Samantha Smith yfirgefið Breiðablik og samið við bandaríska félagið Boston Legacy. Allar voru þær þrjár lykilmenn í Breiðabliksliðinu undanfarin tvö sumur, hjálpuðu Blikum að vinna Íslandsmeistaratitilinn tvö ár í röð og þrefalt sumarið 2025. Framlag þeirra í sóknarleiknum síðasta sumar var líka ekkert smáræði eins og sést vel þegar tölfræði um mörk og stoðsendingar er skoðuð betur. Birta Georgsdóttir varð næstmarkahæst og enn fremur í fjórða sæti í stoðsendingum. Hún skoraði 18 mörk og gaf 8 stoðsendingar en alls kom hún með beinum hætti að 28 mörkum sem var það næstmesta í deildinni. Samantha Smith varð þriðja markahæst og enn fremur í ellefta sæti í stoðsendingum. Hún skoraði 12 mörk og gaf 6 stoðsendingar en alls kom hún með beinum hætti að 21 marki sem var það fjórða mesta í deildinni. Andrea Rut Bjarnadóttir varð í öðru sæti í stoðsendingum með 11 slíkar og skoraði að auki fjögur mörk. Hún kom alls með beinum hætti að 15 mörkum sem var það níunda mesta í deildinni. Samanlagt skoruðu þessar þrjár 34 mörk og gáfu 25 stoðsendingar og það er ljóst að nýir leikmenn þurfa að stíga fram í sóknarleik Blikanna á komandi sumri. Það má heldur ekki gleyma miðjumanninum mikilvæga Heiðu Ragneyju Viðarsdóttur sem hefur einnig yfirgefið félagið en hún var kletturinn á miðju liðsins. Heiða hefur samið við sænska félagið Eskilstuna United. Blikarnir halda þó enn markahæsta leikmanni sínum (Berglind Björg Þorvaldsdóttur, 23 mörk) og stoðsendingahæsta leikmanni sínum (Agla María Albertsdóttir, 18 stoðsendingar). Mikilvægi þeirra ætti jafnvel að vera enn meira í Bestu deild kvenna 2026.
Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Golf Finnst það sárt að mæta ekki skilningi eftir barnsburð Sport Algjört hrun Spurs sem er stigi frá fallsæti Enski boltinn „Ekki svo að við séum að setja stein í götu hennar af því hún eignaðist barn“ Sport Valur - Fram | Meistararnir mæta toppliðinu Handbolti Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Handbolti Sturla hefur átt erfitt með að borða og sofa Sport Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Formúla 1 „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Körfubolti „Þeir geta klárað þetta án mín“ Körfubolti Fleiri fréttir Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Sjá meira