Áfall fyrir Heimi Hallgríms og drauminn um að komast á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2026 13:30 Heimir Hallgrímsson og Josh Cullen sjást hér saman á blaðamannafundi fyrir leik gegn Armeníu í undankeppni HM. Getty/Stephen McCarthy Írska fótboltalandsliðið hefur orðið fyrir verulegu áfalli þrátt fyrir að það séu rúmir tveir mánuðir í næsta leik.
Ástæðan eru alvarleg meiðsli eins lykilmanns liðsins. Burnley staðfesti að miðjumaðurinn Josh Cullen hefði hlotið alvarleg hnémeiðsli en hann er einnig fyrirliði enska úrvalsdeildarliðsins. Cullen meiddist í 0-0 jafntefli gegn Everton á Turf Moor á laugardag. Burnley sagði að hann yrði frá keppni í „langan tíma“ og ljóst er að hann missir af undanúrslitaleik umspilsins fyrir HM gegn Tékklandi í Prag þann 26. mars, ásamt úrslitaleiknum í Dublin gegn Norður-Makedóníu eða Danmörku, komist Írland áfram. View this post on Instagram A post shared by RTÉ Sport (@rtesport) Nú hefur verið staðfest að hann sleit krossband þannig að hann missir ekki aðeins af umspilsleikjunum heldur einnig af HM, komist liðið þangað. „Það segir sig sjálft að ég er niðurbrotinn yfir því að hafa slitið krossband á laugardaginn gegn Everton. Bataferlið er hafið og ég mun gera allt sem ég get til að komast aftur á völlinn eins fljótt og auðið er, fyrir félagslið og landslið,“ skrifaði Cullen á samfélagsmiðla sína. Langvarandi fjarvera hins 29 ára gamla leikmanns er mikið reiðarslag fyrir áætlanir Heimis Hallgrímssonar landsliðsþjálfara Írlands en Cullen hefur verið fastamaður undir stjórn íslenska þjálfarans og forvera hans, Stephen Kenny, og hefur leikið 47 A-landsleiki til þessa. View this post on Instagram A post shared by Josh Cullen (@josh.cullen)
HM 2026 í fótbolta Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Semenyo spenntur fyrir því að starfa undir nýja þjálfaranum Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? „Vorum miklu betri allan tímann“ „Sigurinn var innan seilingar“ Sjá meira