„Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Sindri Sverrisson skrifar 27. desember 2025 17:47 Florian Wirtz var vel fagnað eftir fyrsta markið hans í ensku úrvalsdeildinni. Getty/Robbie Jay Barratt „Þetta var mjög góð tilfinning, á vellinum með stuðningsfólkið allt í kring. Ég var mjög ánægður og er það enn,“ sagði glaður Florian Wirtz eftir að hafa loksins skorað sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni, fyrir Liverpool, í 2-1 sigrinum gegn Wolves í dag.
Wirtz var keyptur frá Leverkusen í sumar fyrir 116 milljónir punda og miklar vonir bundnar við þennan 22 ára gamla Þjóðverja. Hann hefur hins vegar þurft að bíða, líkt og stuðningsmenn Liverpool, eftir fyrsta markinu en það kom í dag. „Ég var viss um að ég myndi skora einn daginn. Ég vildi byrja fyrr að skora og leggja upp mörk en svona var þetta og ég verð að sætta mig við það. Ég veit bara að þetta mun koma og ég reyni að halda áfram á sömu braut,“ sagði Wirtz eftir sigurinn í dag. Klippa: Wirtz í viðtali eftir fyrsta markið Lið Wolves hefur verið skelfilegt á þessari leiktíð og er aðeins með tvö stig á botni úrvalsdeildarinnar. Wirtz var spurður hvort að sigurinn hefði ekki verið óþarflega torsóttur í dag: „Við spiluðum frábæran fyrri hálfleik. Við misstum leikinn frá okkur og náðum honum aftur. Allir lögðu hart að sér. Á síðustu 20 mínútunum gerðum við okkur þetta svolítið erfitt fyrir. Ég get ekki útskýrt af hverju. Við verðum að breyta því,“ sagði Wirtz. Þrír sigrar í röð hafa nú skilað Liverpool upp í Meistaradeildarsæti, með 32 stig. „Þannig viljum við hafa þetta. Við viljum vera þarna og vera á toppi deildarinnar. Þetta hefur ekki verið auðveld byrjun fyrir okkur en okkur gengur betur og erum að ná í stigin,“ sagði Wirtz.
Enski boltinn Liverpool FC Tengdar fréttir Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Liverpool vann 2-1 sigur á lánlausu botnliði Wolves á Anfield í ensku úrvalsdeildinni. Diogo Jota var heiðraður sérstaklega af stuðningsmönnum sinna tveggja fyrrum félaga. 27. desember 2025 16:55 Mest lesið Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Enski boltinn Umfjöllun: Ísland - Frakkland 1-1 | Draumamark Daníels og eitt stig Fótbolti Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Íslenski boltinn Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn Sjáðu mörkin í Osló og Dorgu nota Ödegaard eins og hundasleða Fótbolti Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Sjá meira
Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Liverpool vann 2-1 sigur á lánlausu botnliði Wolves á Anfield í ensku úrvalsdeildinni. Diogo Jota var heiðraður sérstaklega af stuðningsmönnum sinna tveggja fyrrum félaga. 27. desember 2025 16:55