Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Aron Guðmundsson skrifar 21. desember 2025 22:46 Kjartan Már í fyrsta leik sínum með Aberdeen í dag gegn Celtic í skosku úrvalsdeildinni Vísir/Getty Hinn 19 ára gamli Kjartan Már Kjartansson hlýtur mikið lof frá þjálfara sínum hjá skoska úrvalsdeildarfélaginu Aberdeen eftir frábæra frumraun gegn stórliði Celtic.
Aberdeen tapaði leiknum 3-1 en innkoma Kjartans Más af varamannabekknum, í hans fyrsta leik fyrir félagið, var einn af ljósu punktunum fyrir Aberdeen í leik dagsins. Kjartan lagði upp eina mark Aberdeen í leiknum og Jimmy Thelin, þjálfari liðsins, var ánægður með það sem hann sá frá Íslendingnum unga sem og markaskoraranum Kenan Bilalovic, sem hefur einnig þurft að bíða þolinmóður eftir tækifæri með liðinu. „Þegar að þeir ganga til liðs við okkur á sínum tíma var vitað að Kjartan og Kenan þyrftu tíma til þess að aðlagast umhverfinu hér, ákefðinni í leiknum hér sem og líkamlegu baráttunni,“ sagði Thelin þjálfari Aberdeen eftir leik. „Við æfum á hverjum degi og þeir aðlagast betur og betur, vaxa sem leikmenn og verða samkeppnishæfir. Það var gott að sjá þeirra frammistöðu í dag á erfiðum útivelli og á erfiðri stundu. Hvernig þeir tókust á við áskoranir leiksins og sýndu hvað í þeim býr, karakter þeirra skein í gegn.“ Þeir hafi báðir gripið tækifærið sem þeir fengu í dag. „Það er svo mikilvægt að þegar tækifærið gefst að þú grípir það og sýnir hvað í þér býr. Aldur þeirra skiptir engu máli í þessu samhengi, bara að þeir nái að sýna sig. Ég tel að þeir báðir hafi gripið sitt tækifæri í dag. Þeir geta verið mjög sáttir með sína frammistöðu.“ Fyrsti leikurinn að baki hjá Kjartani með Aberdeen. Hann gekk til liðs við félagið síðastliðið sumar frá Stjörnunni.
Skoski boltinn Íslendingar erlendis Mest lesið Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Körfubolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti Fyrrverandi stjórnarmaður Newcastle kaupir hlut í West Ham Fótbolti Dagskráin í dag: Víkingur mætir Skaganum og Opna breska klárast Sport Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Fleiri fréttir Komnir með fleiri stig en í fyrra og eiga enn tíu leiki eftir Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Casemiro skoraði sjálfsmark í fyrsta heimaleiknum og Messi sneri aftur Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior Fyrrverandi stjórnarmaður Newcastle kaupir hlut í West Ham Tékkland ræður spænskan Ólympíumeistara Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Leicester náði ekki að vinna Mikael Egil og félaga Ánægður að fá Mudryk til baka Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Lið Tómasar Bents tapaði eftir dramatískar lokamínútur Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Íslendingaslagur endaði jafn í Danmörku Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Chelsea staðfestir komu Danny Welbeck Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Enn skorar Emelía „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ „Rangur maður til að leiða þessi samtök“ „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Vinícius á förum? JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Infantino hættir við allt saman Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Sjá meira