Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Agnar Már Másson skrifar 20. desember 2025 22:26 Arnór Pálmi Arnarson og Dóra Jóhannsdóttir tóku við verðlaunum fyrir Húsó. Arnór var tilnefndur í flokknum leikstjóri ársins og þau Dóra saman fyrir handrit ársins 2024. Mummi Lú Dóra Jóhannsdóttir, einn handritshöfunda sjónvarpsþáttanna Húsó, hefur birt bréf frá Bandalagi íslenskra listamanna sem lýsir stuðningi við mál hennar en RÚV og Glassriver hafa ekki brugðist við kröfu hennar um að nafn hennar verði birt í tengslum við Húsó. Hún segir að sér hafi verið boðnir samningar með greiðslu upp á fjórar milljónir, sem hún hafi hafnað.
Í síðasta mánuði var greint frá því að nafn Dóru birtist ekki á skjám landsmanna þegar þættirnir voru sýndir á Rúv í byrjun árs né birtist dulnefni hennar, Hekla Hólm, sem hún hafði beðið um að stílað yrði á þættina. Í kvöld birti Dóra stuðningsbréf á Facebook sem henni barst frá Bandalagi íslenskra listamanna (BÍL) dagsett 17. desember. Þar er tekið fram að BÍL styðji við kröfu Dóru um að nafn hennar sem og dulnefni sé birt í tengslum við allar sýningar, tilnefningar og annað sem tengist þáttum Húsó. Bandalagið bendir á að enginn vafi leiki á því að Dóra sé höfundur þáttanna enda hafi hún tekið við verðlaununum sem höfundur þáttanna á íslensku sjónvarpsverðlaununum í lok október. „Þrátt fyrir þetta hafa hvorki RÚV né Glassriver brugðist við skýrri, tímasettri kröfu minni um leiðréttingu á nafnbirtingu og höfundakrediti mínu í tengslum við Húsó,“ skrifar Dóra á Facebook. „Þetta er ekki ágreiningur. Þetta er spurning um framkvæmd lagaskyldu.“ Hún telur óásættanlegt að höfundur þurfi að eyða árum og milljónum til að fá rétt sinn virtan. „Í því ljósi er eðlilegt að spyrja hvaða skilyrði og hvaða eftirliti KMÍ og RÚV beita þegar opinbert fé er veitt framleiðslufélögum, þegar lögbundin nafnbirting og höfundakredit er ekki uppfyllt eða leiðrétt þrátt fyrir ítrekaðar kröfur.“ Í síðustu viku birti Dóra færslu þar sem hún blés á sögusagnir um að hún hefði verið keypt úr GlassRiver. Hið rétta væri að hún hefði farið í sjúkraleyfi í janúar 2023 og tilkynnt að hún gæti mögulega komið aftur að verkefninu um vorið en tökur áttu ekki að hefjast fyrr en um haustið. „Tökum var síðan flýtt án þess að ég fengi upplýsingar og þegar ég frétti það, frá ótengdum aðilum, var lokað á aðkomu mína án samtals.“ Síðan hafi henni verið boðnir samningar með greiðslu upp á fjórar milljónir sem hún hafnað vegna íþyngjandi þöggunarákvæða og orðalags um að loforð væru „án skyldu“. „Slík „samkomulög“ eru því innihaldslaus fyrir höfund,“ skrifar hún og tekur fram að peningar hafi heldur aldrei verið aðalatriðið í þessu máli, heldur að samnings- og lögbundinn höfundaréttur og nafngreiningarréttur hafi ekki verið virtir. Dóra hefur nú gefið út bók um reynslu sína af íslenska kvikmyndabransanum í kringum Húsó og áramótaskaupið 2022.
Kvikmyndagerð á Íslandi Höfundar- og hugverkaréttur Íslensku sjónvarpsverðlaunin Bíó og sjónvarp Mest lesið Nakinn á kóræfingu Lífið „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Fleiri fréttir Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Verður staðartónskáld Sinfó Fékk leyfi Nóbelskálds fyrir heiti nýrrar bókabúðar í Hamraborg Líf og fjör í loðnu málverkunum Kristrún og Isabelle Huppert flottar á opnun Húsó fjarlægðir af Rúv Sígildar myndir og heimsfræg leikkona á franskri kvikmyndahátíð Viðbjóðurinn fær sviðsljósið: „Eilíft vakir minning þín, slef, prump, piss, og þvag og slím“ Blint stefnumót heppnaðist vel Halla T meðal sofandi risa Líkamsumhirða sem þróast í þráhyggju Bestu og verstu leiksýningar síðasta leikárs Trölli stelur jólunum í Borgarleikhúsinu Baltasar Samper látinn Nýr óperustjóri: Lengri samningar og stöðugleiki nýlunda í íslensku óperulífi Vilhjálmur Bergsson er látinn Ólafur Jóhann er konungur bóksölunnar 2025 Enginn formaður Sjalla, Kaffi Vest-samsærið og vinir skoðanabræðra Sjá meira