Albert aftur í byrjunarliðið en martröðin heldur áfram Sindri Sverrisson skrifar 6. desember 2025 15:53 Albert Guðmundsson náði ekki að rétta af skelfilegt gengi Fiorentina í dag. Getty/Emanuele Comincini Skelfilegt gengi Fiorentina hélt í dag áfram í ítölsku A-deildinni í fótbolta þegar liðið tapaði á útivelli gegn Sassuolo, 3-1. Fiorentina hefur ekki enn unnið leik í deildinni, í fjórtán umferðum.
Albert hafði komið inn á sem varamaður í síðustu tveimur deildarleikjum en lék frá byrjun í dag í fremstu víglínu ásamt Moise Kean. Útlitið var gott fyrir Fiorentina á 9. mínútu þegar Rolando Mandragora kom liðinu yfir en strax fjórum mínútum síðar náði Cristian Volpato að jafna metin fyrir Sassuolo. Tarik Muharemovic kom svo Sassuolo yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og Ismael Koné skoraði þriðja mark liðsins á 65. mínútu. Fiorentina er í neðsta sæti deildarinnar með aðeins sex stig, úr sex jafnteflum og átta töpum, og fimm stig eru upp í næsta örugga sæti. Liðið er með 25 stigum minna en á sama tíma fyrir ári síðan. 25 - Fiorentina have collected 25 fewer points than last season after the same number of matches (31 vs. 6); previously, after 14 games, the lowest point difference was 19 between Roma 04/05 and Roma 03/04. Fallen.#SassuoloFiorentina pic.twitter.com/DVt196QOVl— OptaPaolo (@OptaPaolo) December 6, 2025 Sassuolo er í 8. sæti með 20 stig en önnur lið eiga núna leik til góða.
Ítalski boltinn Mest lesið Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Segir Dag hafa beðist afsökunar Handbolti Allir sérfræðingar TV 2 með Gísla í úrvalsliðinu Handbolti Gidsel gefur lítið fyrir tuð Þjóðverja Handbolti Svaf yfir sig og missti af rútunni Handbolti „Mér var nákvæmlega sama um þetta allt saman“ Handbolti Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Körfubolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Sport Utan vallar: Af hverju töpuðu hetjurnar okkar gegn Dönum? Sport Fleiri fréttir Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Fiorentina tapaði fyrir meisturunum Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Vildi ekki peninginn Mourinho mætir Real Madrid aftur eftir ævintýralegan sigur Benfica Brann slapp inn í umspilið eftir hjálp frá öðrum velli Mourinho bað Arbeloa afsökunar á fagnaðarlátunum Hvaða lið gætu mæst í umspili og sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar? Sjáðu markaflóðið í Meistaradeildinni Fékk þjálfarann til að dansa við sig í miðjum leik Markvörður Mourinho tryggði liðið áfram og Bodö/Glimt vann í Madrid Viktor yngstur í sögunni til að skora Evrópumark á Nývangi Sjáðu Viktor skora hjá Barcelona fyrir framan landsliðsþjálfarann Svona var lokaumferðin í Meistaradeildinni Mættu með snjóinn með sér til Madrid Allt undir á lokakvöldi: Sex ensk lið gætu farið beint í 16-liða úrslit Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Víkingur og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins Hlín á láni til Fiorentina FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Sjá meira