Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk ÍMARK 1. desember 2025 09:10 Dr. Tomas M. Hult, prófessor við Michigan State University og Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðssamskipta hjá Íslandsstofu flytja erindi á ÍMARK. Katrín M. Guðjónsdóttir formaður ÍMARK stýrir fundinum. ÍMARK og Háskólinn á Bifröst halda viðburð 9. desember undir yfirskriftinni Árangur í markaðsstarfi - frá gögnum til betri ákvarðanna. Þar verður fjallað um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögn og rannsóknir til að skilja viðskiptavini betur og taka markvissari ákvarðanir í markaðsstarfi. „
Dr. Tomas M. Hult, prófessor við Michigan State University var nýverið valinn í hóp áhrifamestu fræðimanna heims í markaðsfræðum árið 2025," segir Katrín M. Guðjónsdóttir, fundarstjóri og formaður ÍMARK en Dr. Tomas flytur erindið „Ánægja viðskiptavina í dag - hvernig gagnadrifin innsýn getur bætt árangur fyrirtækja í smásölu.“ „Hann mun deila innsýn úr rannsóknum um hvað mótar væntingar, upplifun og tryggð viðskiptavina og hvernig gagnadrifin nálgun skilar raunverulegum árangri. Auk hans verður Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðssamskipta hjá Íslandsstofu, með innlegg um árangur og lærdóm úr íslenskum markaðsherferðum á alþjóðavettvangi," segir Katrín en yfirskrift erindis Daða er „Árangur og lærdómur úr íslenskum markaðsherferðum á alþjóðavettvangi.“ Daði mun einnig fara yfir hvað þarf til að vinna Áruna árangursríkustu markaðsherferð ársins - eða hvað einkennir árangursríkar markaðsherferð. Hér er hægt að tryggja sér miða. Almennt miðaverð er 9.900 krónur. Fyrir aðildarfélaga ÍMARK og námsfólk, 4.900 krónur. Viðburðurinn fer fram 9. desember milli klukan 11 og 12.30 í Arionbanka Borgartúni 19. Boðið verður upp á léttar hádegisveitingar.
Mest lesið „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Hættir sem þjálfari kokkalandsliðsins Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Bónus: „Ég er svona „aulahúmor“-stríðinn“ Atvinnulíf Auglýstu vörur á verði sem ekki stóð neytendum til boða Neytendur Spilavinir í vinnunni: Efla samskipti, samvinnu og hrista saman hópinn Atvinnulíf Félögin þeirra högnuðust mest Viðskipti innlent Gervigreind á jólaísnum hafi komið á óvart Viðskipti innlent Margrét hættir hjá RÚV um áramótin Viðskipti innlent Kaffi Ó-le opið á ný Viðskipti innlent Þorvaldur tekur við af Kristjáni hjá Samherja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira