Hefur ekki gerst hjá Liverpool síðan 1953 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. nóvember 2025 22:30 Mohamed Salah heldur um höfuð sitt í leikslok og vonbrigðin leyna sér ekki. Getty/Carl Recine Liverpool tapaði 4-1 á heimavelli á móti PSV Eindhoven í kvöld. Þetta stórtap þýðir að stuðningsmenn Liverpool eru að upplifa eitthvað sem þeir hafa ekki gert í meira en sjötíu ár.
Með öðrum orðum, mikill meirihluti stuðningsmannahópsins hefur aldrei upplifað daga eins og þessa. Þetta var ekki aðeins þriðja tap Liverpool í röð heldur var þetta þriðja tap Liverpool í röð með þriggja marka mun. Liverpool hafði áður tapað 3-0 á móti Manchester City á útivelli í ensku úrvalsdeildinni og um síðustu helgi steinlá liðið 3-0 á móti Nottingham Forest á heimavelli í deildinni. 4-1 skellurinn í kvöld þýðir að á aðeins nokkrum dögum hefur Liverpool tapað tveimur heimaleikjum með markatölunni 7-1. Það þarf að fara ansi langt aftur til að finna þrjú þriggja marka töp í röð hjá Liverpool. Opta segir að það hafi ekki gerst síðan í desember 1953 eða í næstum því 72 ár. Liverpool tapaði þá 5-1 á móti Portsmouth, 5-1 á móti Manchester United og 5-1 á móti West Bromwich Albion. Liverpool féll í ensku B-deildina seinna um vorið og kom ekki aftur upp fyrr en vorið 1962. Bill Shankly varð ekki knattspyrnustjóri Liverpool árið 1959 og við það hófst velgengni félagsins. Þetta var líka níunda tap liðsins í síðustu tólf leikjum í öllum keppnum. 3 - Liverpool have lost three consecutive games in all competitions by a margin of 3+ goals for the first time since December 1953. Alarming. pic.twitter.com/OlsbDHMwQG— OptaJoe (@OptaJoe) November 26, 2025
Enski boltinn Mest lesið „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Íslenski boltinn Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Enski boltinn Liverpool - Crystal Palace | Leita að þriðja sigrinum í röð Enski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti Lést í miðjum leik Fótbolti Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - ÍBV 3-4 | Nýliðarnir unnu í sjö marka leik Íslenski boltinn „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Íslenski boltinn Viktor Gísli áfram í stuði Handbolti Fleiri fréttir Man. City - Southampton | Dýrlingarnir fá krefjandi verkefni í undanúrslitum Liverpool - Crystal Palace | Leita að þriðja sigrinum í röð Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Sjá meira