ÍTF flytur inn á KSÍ í Laugardalnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2025 10:17 Höfuðstöðvar KSÍ og nú ÍTF eru á Laugardalsvellinum. Vísir/Vilhelm Íslenskur Toppfótbolti, hagsmunasamtök þeirra félaga sem reka lið í tveimur efstu deildum í knattspyrnu karla og kvenna í knattspyrnu, eru flutt með höfuðstöðvar sínar til KSÍ í Laugardalnum.
Knattspyrnusamband Íslands segir frá þessum flutningum á heimasíðu sinni. Á fundi stjórnar KSÍ fyrr á þessu ári kom fram eindreginn vilji stjórnar Íslensks toppfótbolta (ÍTF) að færa aðsetur samtakanna í Laugardalinn, í húsnæði KSÍ. Stjórn KSÍ fagnaði þessu skrefi og nánara samstarfi milli KSÍ og ÍTF almennt. Samtal milli KSÍ og ÍTF um flutninginn var þá þegar hafið og hófst skipulag og undirbúningur flutnings þegar á vormánuðum. Skrifstofa ÍTF hefur nú flutt starfsemi sína í Laugardal, undir þak íslenskrar knattspyrnu og býður nú ÍTF öll aðildarfélög velkomin á skrifstofu sína í Laugardal. „Þetta er áfangi í okkar starfsemi og mikil tilhlökkun hjá okkur að vera mættir aftur niður í Laugardal. Ég held að íslensk knattspyrna eigi heima í Laugardalnum og ég hef fulla trú á því að þetta sé heillavænlegt skref fyrir ÍTF, sem og KSÍ og alla okkar hagsmunaaðila. Núna er hægt að hitta okkur undir sama þaki og það hlýtur að gera gott fyrir okkar samstarf og íslenska knattspyrnu,“ sagði Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF í frétt á síðu KSÍ. „Við fögnum því að fá ÍTF í hús og ég er spenntur að sjá hvernig við getum gert enn betur í markaðssetningu, umgjörð og sýnileika íslenskrar knattspyrnu. Það er af nægu að taka og fullt af verkefnum framundan sem við þurfum að leysa í sameiningu og þess vegna er gott að vera búin að sameina kraftana í Laugardal. Ég hef fulla trú á því að okkar félagar úti í hreyfingunni fagni þessu með okkur,“ sagði Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, í frétt á síðu KSÍ.
KSÍ Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Sá launahæsti í sögunni með fleiri milljarða í tekjur á ári Sport Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Sjá meira