„Þetta hafa verið erfiðir tímar fyrir okkur alla“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. október 2025 10:32 Arne Slot stendur þétt við bakið á Mohamed Salah. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images Arne Slot kom Mohamed Salah til varna á blaðamannafundi fyrir leik Liverpool gegn Brentford á morgun. Egyptinn hefur ekki spilað vel að undanförnu og virtist pirraður á bekkjarsetu í síðasta leik.
Salah hefur verið fastamaður í liði Liverpool undanfarin ár og er iðulega alltaf í byrjunarliðinu þegar hann er heill heilsu, en byrjaði á bekknum og spilaði aðeins rúmar fimmtán mínútur í 5-1 sigri Liverpool á útivelli gegn Eintracht Frankfurt á miðvikudag. Salah brást illa við og var sjáanlega pirraður þegar hann strunsaði inn í klefa eftir leik, þrátt fyrir að Liverpool hafi fagnað fyrsta sigrinum eftir fjóra tapleiki í röð. „Þetta hafa verið erfiðir tímar fyrir okkur alla. Það er enginn vanur því að tapa“ sagði Slot. Salah hefur aðeins skorað þrjú mörk í ellefu leikjum í öllum keppnum og farið illa með mörg góð færi. „Það síðasta sem ég hef áhyggjur af er að Mo fari ekki að skora aftur. Allir leikmenn klúðra færum og hann er bara mannlegur. Við erum ekki vanir því að sjá hann klúðra færum en það er aðalatriðið, við erum vanir því að sjá Mo skora mörk, hann mun finna taktinn aftur og byrja að skora fyrir okkur á næstu vikum eða mánuðum, eins og hann hefur gert allan sinn feril hér. Breytingar á liðinu þýða líka að það þurfa allir að aðlagast“ sagði Slot. Isak og Gravenberch? Slot tjáði sig einnig um stöðuna á leikmönnum liðsins sem hafa verið að glíma við meiðsli. Jeremie Frimpong og Alexander Isak fóru báðir meiddir af velli í síðasta leik gegn Eintracht Frankfurt, sem Ryan Gravenberch missti af. „Jeremie Frimpong er ekki á góðum stað, hann verður ekki með á morgun eða í næstu viku. Meiðsli aftan í læri taka tíma.“ „Alexander Isak er ekki svo slæmur en hann er spurningamerki fyrir helgina, við munum sjá til hvort hann geti verið með og það sama gildir um Ryan Gravenberch.“ „Alisson Becker verður ekki heldur í hópnum“ sagði Slot um markmanninn sem hefur verið meiddur síðan í landsleikjahlénu.
Enski boltinn Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Fótbolti Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Fótbolti Fleiri fréttir Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Sjá meira