Snýr aftur í landsliðið eftir að hafa fengið blóðtappa í heila og farið í hjartaaðgerð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. október 2025 09:01 Alexander Blonz hefur þurft að reyna ýmislegt síðustu mánuðina. getty/Jan Woitas Alexander Blonz, leikmaður Álaborgar í Danmörku, var valinn í norska landsliðið í handbolta eftir nokkurt hlé. Hann hefur glímt við veikindi undanfarna mánuði.
Alexander Blonz, leikmaður Álaborgar í Danmörku, var valinn í norska landsliðið í handbolta eftir nokkurt hlé. Hann hefur glímt við veikindi undanfarna mánuði. Blonz er í norska hópnum sem mætir Danmörku, Færeyjum og Hollandi í Þrándheimi um mánaðamótin. Hornamaðurinn hefur gengið í gegnum erfiða tíma undanfarið. Rétt fyrir síðustu jól fór hnéskel Blonz úr liði á æfingu. Daginn eftir greindist hann með blóðtappa í heila. Í janúar gekkst hann undir aðgerð á hné og fjórum mánuðum síðar þurfti hann að fara í hjartaaðgerð. Blonz er búinn að ná bata, byrjaður að spila með Álaborg og kominn aftur í norska landsliðið, talsvert á undan áætlun. „Það er í raun svolítið snemmt að velja Alexander en við viljum hafa hann með og gefa honum nokkrar mínútur á vellinum,“ sagði Jonas Wille, þjálfari norska landsliðsins. Blonz, sem er 25 ára, hóf ferilinn með Viking í heimalandinu en gekk í raðir Elverum 2019 og lék með liðinu í tvö ár. Hann lék svo um tveggja ára skeið með Pick Szeged í Ungverjalandi, tvö ár með GOG í Danmörku en fór svo til Álaborgar í sumar. Noregur heldur EM í janúar ásamt Danmörku og Svíþjóð.
Norski handboltinn Danski handboltinn Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira