Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Valur Páll Eiríksson skrifar 30. september 2025 15:50 Bjarki Már skoraði eitt fyrir Veszprém í dag og fer í úrslit annað árið í röð. Ayman Aref/NurPhoto via Getty Images Veszprém lagði Magdeburg 23-20 í Íslendingaslag í undanúrslitum á HM félagsliða í handbolta síðdegis. Liðið hefur því tök á að verja titil sinn síðan í fyrra.
Mótið fer fram í Egyptalandi en liðin tvö unnu sína riðla í forkeppninni um helgina og mættust því í undanúrslitum í dag. Gísli Þorgeir Kristjánsson bar uppi sóknarleik Magdeburgar í fyrri hálfleik og var markahæstur í þýska liðinu þegar hálfleiksflautið gall. Magdeburg leiddi þá 11-9 en athygli vakti að Ómar Ingi Magnússon, sem hefur raðað inn mörkum í vetur, komst ekki á blað fyrir hlé. Magdeburgurum fataðist flugið eftir hlé. Veszprem skoraði fimm mörk í röð til að breyta stöðunni úr 14-12 fyrir Madgeburg í 17-14. Mest komst Veszprem fjórum mörkum yfir en Magdeburg svaraði á lokakafla leiksins. Munurinn var eitt mark, 21-20, þegar fjórar mínútur voru eftir og stefndi í spennandi loka mínútur. Veszprém svaraði með tveimur mörkum í röð og kláraði þar með leikinn. Honum lauk 23-21 fyrir þá ungversku. Gísli Þorgeir skoraði fjögur og lagði upp tvö í leiknum. Ómar Ingi skoraði eitt og Elvar Örn Jónsson eitt fyrir Magdeburg. Bjarki Már Elíusson skoraði úr sinni einu marktilraun í leiknum fyrir Vesprém sem mætir annað hvort Barcelona eða Al Ahly frá Egyptalandi í úrslitum. Veszprém lagði Magdeburg í úrslitum keppninnar í fyrra og á því titil að verja.
Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Sjá meira