Svíar sóttu jafntefli og Ítalir möluðu Eista Siggeir Ævarsson skrifar 5. september 2025 21:35 Alexander Isak var kampakátur á æfingu fyrir leik en sat svo bara allan tímann á bekknum, enda ekki í neinu leikformi EPA/JONAS EKSTROMER Alls fóru tíu leikir fram í kvöld í undankeppni HM 2026. Leik Svíþjóðar og Slóveníu var beðið með nokkurri eftirvæntingu þar sem Alexander Isak var mættur til leiks.
Isak endaði reyndar á að sitja allan leikinn á bekknum enda ekki í neinni leikæfingu. Án hans tókst Svíum engu að síður að sækja eitt stig til Slóveníu en lokatölur leiksins urðu 2-2 en Slóvenar jöfnuðu leikinn á 90. mínútu. Í hinum leik kvöldsins í B-riði tók Sviss Kósóvó í létta kennslustund þar sem Breel Embolo skoraði tvö mörk í 4-0 heimasigri Sviss. Í C-riðli tóku frændur okkar Danir á móti Skotum í leik sem endaði 0-0 sem eru eflaust úrslit sem bæði lið eru óánægð með, en Skotar hafa ekki komist á lokakeppni HM síðan 1998. Þá unnu Grikkir sannfærandi 5-1 sigur á Belarús og tylla sér afgerandi á topp riðilsins um stund. Ítalir tóku Eista í bakaríkið í I-riðli 5-0 en öll mörkin komu í seinni hálfleik og síðustu tvö í blálokin. Þá unnu Ísraelar öruggan 0-4 sigur á Moldóvu. Við áttum fleiri frændur í eldlínunni í kvöld en Færeyingar þurftu að sætta sig við 0-1 tap á heimavelli gegn Króötum. Færeyingar leika í L-riðli ásamt Tékkum og Svartfellingum en Tékkar sóttu Svartfjallaland heim í kvöld og fóru með 0-2 sigur af hólmi.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Fótbolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Sjá meira