Handbolti

Sjáðu Viktor Gísla fá hópknús eftir að hafa tryggt Barcelona titil

Sindri Sverrisson skrifar
Liðsfélagarnir hópuðust að Viktori Gísla Hallgrímssyni eftir vítið sem hann varði í gær, sem tryggði Barcelona titil.
Liðsfélagarnir hópuðust að Viktori Gísla Hallgrímssyni eftir vítið sem hann varði í gær, sem tryggði Barcelona titil. Skjáskot/Instagram

Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson er þegar farinn að vinna titla með spænska stórveldinu Barcelona og honum var vel fagnað eftir að hafa tryggt liðinu titil í gær.

Börsungar höfðu þegar tryggt sér katalónska ofurbikarinn með sigri á Fraikin Granollers síðasta þriðjudag en það var mikil spenna í loftinu þegar þeir unnu Sporting Lissabon frá Portúgal í Íberíuofubikarnum í gær.

Leikurinn endaði í vítakeppni þar sem Viktor Gísli varði lokaskotið frá Carlos Álvarez við mikinn fögnuð eins og sjá má hér að neðan.

Staðan hafði verið 31-31 að loknum venjulegum leiktíma en Barcelona vann svo leikinn 35-34.

Viktor Gísli er einn af sjö nýjum leikmönnum í liði Barcelona sem væntanlega þarf einhvern tíma til að mótast betur saman. Liðið lenti 15-13 undir í fyrri hálfleiknum gegn Sporting og mest þremur mörkum undir í seinni hálfleik, 19-16.

Dika Mem, Tim N‘Guessan og Ian Barrufet leiddu liðið áfram í að jafna metin, samkvæmt spænskum miðlum, og var Barrufet valinn maður leiksins eftir að hafa skorað sex mörk. Það var N‘Guessan sem jafnaði metin og kom leiknum í vítakeppnina, þar sem Viktor Gísli reyndist svo hetjan.

Daninn magnaði Emil Nielsen, sem Viktor Gísli berst við um markmannsstöðu Barcelona, hafði varið fyrsta víti Sporting eftir klúður Aleix Gómez. Öll víti fóru inn eftir það þangað til að Viktor Gísli varði frá Álvarez og tryggði sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×