Enski boltinn

Dan Burn hjá Newcastle: Verðum svekktir ef Alexander Isak fer

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alexander Isak og Dan Burn fagna saman marki þess fyrrnefnda á móti West Ham á síðustu leiktíð.
Alexander Isak og Dan Burn fagna saman marki þess fyrrnefnda á móti West Ham á síðustu leiktíð. Getty/Bradley Collyer

Hetja Newcastle í deildabikarúrslitaleiknum á síðasta tímabili segir það yrði slæmt fyrir leikmannahópinn fari svo að sænski framherjinn Alexander Isak yfirgefi félagið.

Varnartröllið Dan Burn hefur tjáð sig um alla sögusagnirnar í kringum framtíð Isak sem er sjálfur sagður vilja fara frá félaginu til Liverpool.

Fór ekki til Asíu

Isak flaug ekki með Newcastle liðinu til Asíu og ástæðan voru smávægileg meiðsli. Enskir fjölmiðlar hafa þó aðra sögu að segja því staðreyndin sé sú að leikmaðurinn vill fara.

Liverpool hefur mikinn áhuga á sænska framherjanum og er sagt vera tilbúið að bjóða 150 milljónir punda í leikmanninn.

„Ef við missum einhvern leikmann þá væri það svekkjandi fyrir okkar samheldna leikmannahóp. Við höfum myndan sterkan hóp undanfarin tvö til þrjú ár. Við verðum svekktir ef Alexander Isak fer,“ sagði Dan Burn.

„Það myndi ekki hjálpa okkur að missa slíkan mann en við getum samt bara stjórnað því sem við getum stjórnað. Okkur hlakkar til að fá Alex til baka inn í liðið þegar hann er búinn að ná sér af meiðslunum,“ sagði Burn.

Burn vonast til þess að Alexander Isak verði áfram hjá Newcastle en það sé hans ákvörðun.

Spurning sem Alex þarf að svara sjálfur

„Þetta er spurning sem Alex þarf að svara sjálfur. Hann er augljóslega mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur en við erum líka með mikil gæði annars staðar í leikmannahópnum. Við erum líka að fá Anthony [Elanga] inn sem eru frábær kaup,“ sagði Burn.

Miðjumaðurinn Bruno Guimarães sagðist ekki vita um það hvort Isak vildi fara frá félaginu en ítrekaði að þeir vilji halda sínum bestu leikmönnum.

„Hann er auðvitað toppleikmaður og við vitum allt um það sem er í gangi hjá honum. Hann er heima í meðhöndlun,“ sagði Guimaraes.

Viljum halda okkar bestu mönnum

„Við viljum halda okkar bestu mönnum og ég veit ekkert meira en bara það að hann sé meiddur. Það er ekki mitt að tala um hann og félagið verður bara að taka á þessu,“ sagði Guimaraes.

Isak skoraði 27 mörk í 42 leikjum í öllum keppnum á síðasta tímabili og hjálpaði Newcastle að vinna enska deildabikarinn og komast í Meistaradeildina.

Fyrsti leikur Newcastle í Asíuferðinni er á móti Arsenal á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×