Menning

Ljóð Lomma reyndist vera skáld­skapur gervigreindarinnar

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ásta Ásgeirsdóttir bað gervigreindarforritið Viskubrunn um að finna viðeigandi ljóð fyrir sig. Gervigreindin skáldaði fram texta en eignaði hann Jóni Erni Loðmfjörð, Lomma.
Ásta Ásgeirsdóttir bað gervigreindarforritið Viskubrunn um að finna viðeigandi ljóð fyrir sig. Gervigreindin skáldaði fram texta en eignaði hann Jóni Erni Loðmfjörð, Lomma.

Skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar notaði íslenska gervigreindarforritið Viskubrunn til að finna ljóðlínur eftir skáldið Jón Örn Loðmfjörð. Jón Örn, betur þekktur sem Lommi, kannaðist hins vegar ekkert við ljóðlínurnar og virðist gervigreindin hafa skáldað fram textann.

Tíundi bekkur Grunnskóla Reyðarfjarðar útskrifaðist 4. júní síðastliðinn við hátíðlega athöfn. Ásta Ásgeirsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar, flutti ræðu við útskriftina og hrósaði nemendum fyrir kraft þeirra, einlægni, vinnusemi og góða hjarta.

Í lok ræðunnar vísaði hún í það sem hún taldi vera ljóð eftir rithöfundinn Jón Örn Loðmfjörð sem hljóðaði svo:

„Það sem við gerum í dag, byggir heiminn á morgun. Látum því góðmennsku og kraft vera okkar leiðarljós.“

Bútur úr ræðunni birtist í tilkynningu á vef Grunnskóla Reyðarfjarðar um útskriftina. Ljóðið rataði síðan einhvern veginn til meints höfundar ljóðlínanna, sjálfs Lomma, sem kannaðist ekkert við textann. 

Myndirnar tvær sem Lommi birti í hringrás sinni.

Í Instagram-hringrás sinni birti Lommi skjáskot af ræðunni og skrifaði við hana: „Uhh... ég hef verið á einhverju.“

„Ok... ekki treysta AI til að fara með ljóðlínur[,] hún býr þær til,“ skrifaði hann svo í næstu hringrásarfærslu.

Lommi á góðri stundu fyrir nokkrum árum.

Fréttastofa leitaði viðbragða Lomma sem vildi ekki gera of mikið úr málinu, allra síst hæðast að skólastjóranum. Mistök sem þessi væru eitthvað sem margir gerðu við notkun gervigreindar og fleiri ættu eftir að endurtaka þau.

Lommi segir fyrstu viðbrögð sín við uppdiktaða ljóðinu hafa verið að hlæja og skella því á Instagram. Skynvillur sem þessar væru alltaf að gerast hjá gervigreindarforritum og hvaða rithöfundur sem er hefði getað orðið fyrir barðinu á gervigreindinni.

Borið hefur töluvert í fréttum af því að gervigreind skáldi upplýsingar fyrir notendur. Frægt nýlegt dæmi er bókalisti sem Chicago Sun-Times tók saman fyrir lesendur sína og reyndist innihalda töluvert af bókum sem voru ekki til. Höfundur greinarinnar notaði gervigreind og las ekki nægilega vel yfir listann áður en hann birtist í blaðinu.

Önnur skuggahlið gervigreindarinnar er sú að tæknirisinn Meta stal gríðarlegu magni af verkum rithöfunda um allan heim, þar á meðal frá Íslandi, til að þjálfa gervigreind sína.

Viskubrunnur fyllti í eyðurnar

Ásta Ásgeirsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar, sagðist vera miður sín með mistökin þegar fréttastofa hafði samband. Komið hefði henni í koll að athuga staðreyndirnar ekki betur.

Ásta, hér hægra megin, ásamt Jónu Árnýju og Hjördísi Selja,

„Þarna kemur það niður á manni þegar maður er að breyta á síðustu stundu og tékkar ekki nógu vel. Ég notaði Viskubrunn, gervigreindarforrit, sem ég hélt að væri ritrýndara en ChatGPT. Þetta er íslensk gervigreind sem skólar nota mikið og við höfum prófað að taka inn,“ segir hún.

Viskubrunnur er vefsíða sem byggir á gervigreind og er hugsað til að aðstoða kennara við að búa til kennsluefni. Forritið er þróað af kennurunum Bergmanni Guðmundssyni og Hans Rúnari Snorrasyni sem hafa áratuga reynslu af grunnskólakennslu. Viskubrunnur byggir á OpenAI og notast við DALL·E 3 til myndsköpunar.

„Ég verð nú að viðurkenna að ég er ekki mikil ljóðamanneskja en ég setti inn að mig vantaði þetta, þetta og þetta til að loka ræðunni. Þá komu þessar ljóðlínur upp,“ segir Ásta.

Ljóðið alveg á skjön við skáldskap skáldsins

Hún segist oft hafa gúgglað sig til í gegnum tíðina og taldi sig vera að gera eitthvað því sambærilegt.

„Ég sannreyndi að hann Jón er til, sá ekki þetta ljóð en ég sá annað ljóð og hugsaði: ,Hann er bara með alls konar‘. Svo var þetta svo snilldarlega vel orðað og hentaði rosalega vel inn í ræðuna,“ segir Ásta.

„En þetta er algjörlega á skjön við það sem hann er að gera. Ég sá það þegar ég kannaði þetta betur í morgun,“ segir hún.

Ásta er nú búin að breyta tilkynningunni á vefsíðu grunnskólans þannig að ekki er lengur ranglega vísað í Lomma. Og ætlar að gæta sín betur næst þegar hún notar gervigreind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.