Innlent

Norðurlandamót í Bridge á Laugar­vatni alla helgina

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, sem er allt í öllu á Laugarvatni um helgina.
Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, sem er allt í öllu á Laugarvatni um helgina. Aðsend

Mikil spenna er nú á Laugarvatni því þar fer fram norðurlandamót í Bridges og verða Norðurlandameistarar krýndir þar á morgun. Spilað er í menntaskólanum og allt mótið er í beinni útsendingu á netinu.

Mótið hófst á fimmtudaginn í Menntaskólanum að Laugarvatni og hafa fulltrúar Norðurlandanna verið að spila á fullum krafti síðan.

Matthías Imsland er framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands og er allt í öllu á Laugarvatni i tengslum við mótið.

„Aðstaðan á Laugarvatni er orðin alveg frábær. Vistirnar eru flottar og það er góð aðstaða og það er líka þannig að þegar við erum að halda þessi norðurlandamót að spilarar vilja vera saman í staðinn fyrir ef við værum í Reykjavík þá væru þeir að dreifast út um allt,“ segir Matthías.

Landsliðið í opna flokknum á mótinu á Laugarvatni.Aðsend

Um 80 þátttakendur eru á mótinu en sex lið eru í opnum flokki og sex lið í kvennaflokki.

„Það er Ísland, Færeyjar, Danmörk, Noregur, Finnland og Svíþjóð,“ segir Matthías. Hann á von á spennandi móti.

„Já ég á von á því. Það er gaman að segja frá því að í opna flokknum er Ísland efst þegar þrjár umferðir eru búnar þannig að við erum gríðarlega spennt hvernig það fer og kvennaliðið hefur verið að standa sig ágætlega líka“.

Landsliðsmennirnir Arngunnur og Alda að horfa á beina útsendingu í fyrirlestrarsalnum. Aðsend

Matthías segir að áhugi á bridge á Íslandi sé alltaf að aukast og aukast enda meira og minna uppselt á öll námskeiðin, sem Bridgesamband Íslands hefur boðið upp á þar sem þátttakendum er kennt að spila bridge og farið er í gegnum allar reglurnar í spilinu.

En getur fólk komið á Laugarvatn um helgina og fylgst með Norðurlandamótinu eða hvað?

„Já, fólk getur komið og fylgst með. Það er opið og getur labbað um. Það er salur, fyrirlestrasalurinn á Laugarvatni en þar erum við með útsendingu þar sem fólk getur fylgst með og svo erum við líka með beina útsendingar á netinu frá leikjum þannig að fólk getur fylgst með heiman frá sér líka,“ segir Matthías.

Birkir Jón Jónsson er einn af spilurum mótsins fyrir hönd Íslands. Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×