Guðjóni Val tókst ekki að hjálpa löndum sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júní 2025 18:38 Mathias Gidsel og félagar í Füchse Berlín fagna í sigurleiknum á móti Gummersbach í kvöld. Getty/Andreas Gora/ Füchse Berlin endurheimti toppsætið í þýsku handboltadeildinni eftir sannfærandi sigur á Íslendingaliðinu Gummersbach í kvöld.
Þetta var síðasti leikurinn í næstsíðustu umferð deildarinnar en lokaumferðin fer síðan fram um helgina. Magdeburg hafði tekið toppsætið af Füchse Berlin með sigri í gærkvöldi en Füchse er eftir þennan sigur með eins stigs forskot á Magdeburg fyrir lokaumferðina á sunnudaginn. Magdeburg spilar þá á útivelli á móti SG BBM Bietigheim á sama tíma og Füchse Berlin er í heimsókn til Rhein-Neckar Löwen. Bietigheim er lakara lið (15. sæti) en Löwen er í níunda sæti deildarinnar. Füchse Berlin vann leikinn í kvöld á endanum með tíu marka mun, 45-35, eftir að hafa verið sjö mörkum yfir í hálfleik 22-15. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar lið Gummersbach sem er í sjöunda sæti deildarinnar eftir þetta tap og getur ekki komist ofar. Gummersbach var búið að vinna fjóra leiki í röð fyrir leikinn í kvöld og því voru smá vonir um að liðið gæti hjálpað öðru Íslendingaliði með því að taka stig af Berlínarliðinu. Teitur Örn Einarsson skoraði sex mörk fyrir Gummersbach og Elliði Snær Viðarsson var með eitt mark. Mathias Gidsel var frábær að venju með Füchse en hann skoraði ellefu mörk úr aðeins þrettán skotum og gaf sex stoðsendingar.
Þýski handboltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Sjá meira