Upp­gjörið: Ís­land - Frakk­land 0-2 | Tíundi leikurinn í röð án sigurs

Ágúst Orri Arnarson og Hjörtur Leó Guðjónsson skrifa
Íslenska kvennalandslðið í knattspyrnu mátti þola tap gegn Frökkum í kvöld.
Íslenska kvennalandslðið í knattspyrnu mátti þola tap gegn Frökkum í kvöld. Vísir/Anton Brink

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 0-2 tap er liðið tók á móti Frökkum í Þjóðadeildinni á nýjum Laugardalsvelli í kvöld.

Íslenska liðið byrjaði ágætlega og pressaði hátt fyrstu mínúturnar. Frakkar áttu í örlitlum vandræðum með að leysa úr pressu íslenska liðsins, en tókst að finna lausnina eftir um fimm mínútna leik.

Við tók þá við kafli þar sem gestirnir voru mun hættulegri aðilinn, en íslensku stelpurnar stóðu vörnina vel. Eina alvöru tækifærið sem Frakkar sköpuðu sér á þessum kafla kom á 13. mínútu þegar skot Sandie Toletti stefndi í fjærhornið, en Cecilía Rán nýtti sér alla þá sentímetra sem hún hefur til að teygja sig í boltann og blaka honum framhjá.

Frakkar voru áfram með yfirhöndina eftir þetta, en íslensku stelpurnar sýndu inn á milli takta og ógnuðu franska markinu. Hlín Eiríksdóttir fékk ákjósanlegt færi eftir um tuttugu mínútna leik, en skot hennar varið.

Besta færi fyrri hálfleiksins kom þó á 36. mínútu. Dagný Brynjarsdóttir sótti þá aukaspyrnu á um 30 metra færi og fyrir Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur er það hörku skotfæri. Sérstaklega með vindinn í bakið. Karólína lét vaða, en skot hennar varið. Boltinn hrökk hins vegar út í teig þar sem Glódís Perla var fyrst að átta sig, en fyrirliðinn hitti boltann illa og skotið því framhjá markinu.

Karólína Lea í baráttunni í leik kvöldsins.Vísir/Anton Brink

Stelpurnar okkar fundu aukin kraft eftir þetta færi, en tókst ekki að koma boltanum í netið. Ekki frekar en Frökkum og staðan því markalaus þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja, þrátt fyrir eitt lokafæri Sveindísar í uppbótartíma.

Strax í upphafi síðari hálfleiks var svo ljóst í hvað stefndi. Léttleikandi Frakkar með íslenska júníhretið í bakið voru alltaf að fara að reynast íslenska liðinu erfiðir.

Franska liðið lá í sókn stærstan hluta seinni hálfleiksins og ef ég ætti að giska voru gestirnir með boltann í kringum áttatíu prósent af mínútunum 45. Íslenska vörnin stóð hins vegar vel og gaf fá færi á sér.

Dagný Brynjarsdóttir kom inn í byrjunarliðið.Vísir/Anton Brink

Frökkum tókst hins vegar loksins að brjóta ísinn þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka. Varamaðurinn Melvine Mallard slapp þá inn fyrir og renndi boltanum fyrir markið þar sem Sandy Baltimore mætti á ferðinni og skilaði boltanum í netið. Markið hefði þó aldrei átt að standa þar sem Mallard var rangstæð í aðdraganda marksins.

Annað markið kom svo þegar um fimm mínútur voru til leiksloka. Sending inn fyrir og Grace Geyoro var sloppin ein í gegn. Cecilía rauk út úr markinu, en réði ekki við skotið og staðan orðin 0-2.

Fleiri urðu mörkin ekki og niðurstaðan því 0-2 sigur Frakka. Þetta var tíundi leikurinn í röð þar sem íslenska liðinu tekst ekki að vinna og liðið hafnar í þriðja sæti riðilsins í A-deild Þjóðadeildarinnar.

Atvik leiksins

Fyrra franska markið er klárlega stærsta atvik leiksins, sérstaklega í ljósi þess að það hefði líklega aldrei átt að standa. Melvine Mallard virtist klárlega rangstæð í aðdraganda marksins.

Stjörnur og skúrkar

Þrátt fyrir að hafa fengið á sig tvö mörk var Cecilía Rán Rúnarsdóttir að stærstum hluta eins og klettur í íslenska markinu. Greip vel inn í þegar liðið þurfti á henni að halda, en gat lítið gert í mörkum Frakka. Það sama má segja um Ingibjörgu Sigurðardóttur sem stóð vaktina vel í miðverðinum.

Dómarinn

Emanuela Rusta og albanska dómarateymið hennar fær ekki beint framúrskarandi einkunn fyrir sína framistöðu í kvöld. Það var nokkuð um skrítnar ákvarðanir og á virtist fyrra mark Frakka koma eftir rangstöðu.

Stemning og umgjörð

Stemningin á Laugardalsdvelli var mikil þrátt fyrir júníhret og skítakulda. Rúmlega 2.100 manns á vellinum og virtust flestir skemmta sér vel í kuldanum.

Hins vegar verður að setja spurningamerki við umgjörðina fyrir leik, þ.e. framkvæmd leiksins. Þegar franski þjóðsöngurinn var spilaður var eitthvað sem klikkaði og virtust tvö önnur lög vera spiluð á sama tíma, Frökkunum til lítillar skemmtunnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira