Enski boltinn

Enn hærra metboð frá Liverpool

Sindri Sverrisson skrifar
Florian Wirtz virðist vera á leiðinni til Liverpool.
Florian Wirtz virðist vera á leiðinni til Liverpool. Getty/Pau Barrena

Forráðamenn Liverpool halda áfram viðræðum við kollega sína hjá Leverkusen, eftir að hafa tryggt sér bakvörðinn Jeremie Frimpong, og hafa lagt fram nýtt mettilboð í Þjóðverjann Florian Wirtz.

Liverpool er sagt vera eina félagið sem Wirtz vill semja við fari svo að hann yfirgefi Leverkusen, þar sem þessi 22 ára landsliðsmaður hefur spilað allan sinn meistaraflokksferil.

Liverpool-menn lögðu upphaflega fram um 100 milljóna evra tilboð sem hefði verið nóg til að gera Wirtz að dýrasta leikmanni í sögu félagsins. Leverkusen hafnaði því en nú hafa Englandsmeistararnir bætt tilboð sitt og bjóða upphæð sem gæti orðið 130 milljónir evra, eða 18,7 milljarðar króna, samkvæmt hinum virta David Ornstein hjá The Athletic.

Félagsskiptafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að búast megi við því að samkomulag náist von bráðar á milli Liverpool og Leverkusen. Það hafi raunar alltaf verið búist við því og jákvæðni ríkt varðandi þessi vistaskipti. Nú sé bara verið að ganga frá því hvernig nákvæmlega fyrirkomulagið verði varðandi viðbótargreiðslur.

Wirtz er með samning við Leverkusen sem gildir til sumarsins 2027.


Tengdar fréttir

Skrifar undir fimm ára samning við Liver­pool

Eng­lands­meistarar Liver­pool hafa fyllt upp í skarðið sem að Trent Alexander-Arn­old skyldi eftir sig. Jeremi­e Frimpong hefur skrifað undir fimm ára samning í Bítla­borginni og kemur frá Bayer Le­verku­sen.

Trent með á HM og Liverpool fær væna summu

Real Madrid tilkynnti í dag að náðst hefði samkomulag við Liverpool svo að félagið fengi Trent Alexander-Arnold strax til sín, í tæka tíð fyrir HM félagsliða í júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×