Lífið

Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar

Jakob Bjarnar skrifar
Stjórnmálafræðingarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir fara í saumana á leynireglunni Illuminati í hlaðvarpsþáttum sínum Skuggavaldinu.
Stjórnmálafræðingarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir fara í saumana á leynireglunni Illuminati í hlaðvarpsþáttum sínum Skuggavaldinu. vísir

Hvað eiga Beyoncé, franska byltingin og breska konungsfjölskyldan sameiginlegt? Samkvæmt sumum eru þau öll útsendarar Illuminati – alræmds leynifélags sem, ef marka má kenningasmiði fortíðar og internetsins í dag, stýrir heiminum úr skugganum.

Í nýjasta þætti Skuggavaldsins – þeim síðari af tveimur um Illuminati-goðsögnina – beina prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann spjótum sínum að þrálátum samsæriskenningum um þessa dularfullu leynireglu sem sögð er teygja arma sína um sögu, stjórnmál og menningu: Frá byltingum til Beyoncé – þrálátar grunsemdir um að Illuminati leynireglan stjórni öllu á milli himins og jarðar

Illuminati var í raun tiltölulega fámenn bræðraregla, stofnuð af lagaprófessornum Adam Weishaupt árið 1776, með það að markmiði að umbreyta samfélaginu í anda upplýsingarinnar, jafnréttis og trúfrelsis. Reglan varð skammlíf, en eftirmælin urðu þeim mun dramatískari.

Ein lífseigasta goðsögn samtímans

Í gegnum áratugi og aldir hafa samsæriskenningasmiðir ofið margslunginn vef þar sem Illuminati átti að hafa leikið lykilhlutverk í frönsku byltingunni, heimstyrjöldunum, bolsevíkabyltingunni í Rússlandi – og jafnvel stofnun Eurovision. Frímúrarar, Rothschildar, Rockefellerar, geimverur, rapparar og jafnvel Kardashian-fjölskyldan blandast öll í súpu sem er jafn bragðmikil og hún er langsótt.

Forsaga þessara sagna er nokkurn veginn svona: Snemma á 19. öld tóku andstæðingar byltinga – einkum kaþólskir, konungssinnaðir höfundar – að útbreiða kenningar um að Illuminati hefði staðið að baki frönsku byltingunni. Frímúrarastúkum var blandað í málið, og úr varð heill hugmyndafræðilegur grautur sem óx að umfangi með hverri kynslóð.

Sagan um Illuminati er ekki síst merkileg fyrir það hvernig leynifélag, sem í raun entist vart í áratug á ofanverðri 18. öld, hefur orðið að einni lífseigustu goðsögn samtímans – tákni fyrir hið ósýnilega vald sem fólk víða um heim óttast enn.

Auk þess að hafa komið á frönsku stjórnarbyltingunni er Illuminati grunað um að hafa staðið að baki heimstyrjöldum og að vera hin ógnarþrungna nýja heimsskipan – The New World Order. Í samtímanum er Illuminati sagt hafa staðið á bak við fjármálakrísur og farsóttir – þar trónir COVID-19-faraldurinn sem nýjasta afrekið.

Raunveruleg trú á alheimsráðabrugg

Sagan ferðaðist víða og losnaði smám saman úr tengslum við Weishaupt og stofnendurna á átjándu öld. Illuminati varð að táknmynd fyrir allt sem talið er stjórna heiminum úr skugganum: frá alþjóðastofnunum eins og Sameinuðu þjóðunum og NATO til tæknirisa, banka og menningarelítu.

Tónlistarmennirnir Jay-Z og Beoncie hafa bæði komið við sögu í lífseigum sögusögnum um Illuminati.

Frá dauða konunga og byltingum til tákna í auglýsingum, rapptónlist og Hollywood er Illuminati víða notað til að skýra veröld sem margir upplifa sem sífellt óskiljanlegri.

Í þættinum fara þau Hulda og Eiríkur ofan í það hvað geri langsóttar sögur um löngu liðna bræðrareglu frá Bæjaralandi í Þýskalandi svona langlífar. En að baki býr ekki síður menningarleg þörf fyrir einfaldar skýringar heldur en raunveruleg trú á alheimsráðabrugg.

Úr þessu hefur orðið menningarfyrirbæri sem virðist nærast á stöðugt endurnýjaðri goðsagnagerð. Illuminati lifir nú í menningunni, í hrollvekjum, popplögum og kenningum á netinu – og í því samhengi hefur litla leynireglan úr Bæjaralandi náð þeim heimsveldismarkmiðum sem það einu sinni setti sér: að móta hugmyndir fólks út um heim.


Tengdar fréttir

Illuminati varð tákn­mynd ótta við ósýni­leg öfl

Goðsögnin um Illuminati-leyniregluna er ein sú lífseigasta í sögu samsæriskenninga enda er hugmyndin um ósýnilega valdaklíku sem stýri framgangi mannkynssögunnar í senn heillandi og ógnvekjandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.