Fleiri sæti í boði fyrir stelpurnar okkar á HM 2031 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. maí 2025 18:25 Íslensku landsliðskonurnar hafa komist á fimm síðustu Evrópumót en eiga enn eftir að komast á HM. Vísir/Hulda Margrét Framkvæmdaráð Alþjóða knattspyrnusambandsins hefur samþykkt það að fjölga keppnisþjóðum á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta.
Þetta þýðir að liðum á HM eftir sex ár fjölgar úr 32 í 48. Þetta verður ekki formlegt fyrr en breytingin verður staðfest með kosningu á FIFA-þinginu í Asunción í Paragvæ á fimmtudaginn kemur. Það er þó ekki búist við mikilli andstöðu. ESPN segir frá. Það verða 32 þjóðir á næsta heimsmeistaramóti sem fram fer í Brasilíu 2027 en heimsmeistaramótið árið 2031 fer væntanlega fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Sameiginlegt framboð frá Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada er það eina sem er á borðinu en verður ekki staðfest af FIFA fyrr en á næsta ári. Með þessu verður heimsmeistaramót kvenna orðið jafnstórt karlamótinu. 48 þjóðir taka þátt í næsta heimsmeistaramóti karla sem fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada næsta sumar. Tólf þjóðir tóku þátt á fyrsta heimsmeistaramóti kvenna 1991, þeim var fjölgað upp í sextán árið 1999, upp í 24 þjóðir árið 2015 og það tóku síðan 32 þjóðir þátt í síðasta heimsmeistaramóti kvenna árið 2023. Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei komist á HM en oft verið nálægt því. Liðið hefur verið fastagestur á Evrópumótinu frá og með árinu 2009. Með þessari breytingu ætti sætum Evrópu að fjölga og þar með væru fleiri sæti í boði fyrir íslensku stelpurnar. Þær ætla sér þó örugglega að tryggja sig inn á næsta heimsmeistaramót eftir tvö ár.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Sjá meira