Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Sindri Sverrisson skrifar 29. nóvember 2024 22:25 Flynn Downes skoraði jöfnunarmark Southampton og fagnaði því vel. Getty/Matt Watson Botnlið Southampton krækti í stig á útivelli í fyrsta sinn á tímabilinu þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við spútniklið Brighton í kvöld, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Kaoru Mitoma kom Brighton yfir á 29. mínútu og útlitið var gott há liðinu í hálfleik, á leið upp fyrir Manchester City í 2. sæti deildarinnar. Flynn Downes náði hins vegar að jafna metin fyrir Southampton á 59. mínútu og fleiri gild mörk voru ekki skoruð. Southampton skoraði þó reyndar annað mark skömmu síðar, þegar Cameron Archer kom boltanum í netið eftir fyrirgjöf Ryan Fraser, en markið fékk ekki að standa. Það tók fjóra og hálfa mínútu að komast að þeirri niðurstöðu að markið ætti ekki að standa, eftir skoðun á myndbandi, en niðurstaðan varð sú að Adam Armstrong hefði verið rangstæður og haft áhrif á leikinn. Brighton var svo nálægt því að skora sigurmark í lokin en Simon Adingra setti boltann í stöng. Stigið dugði þó Brighton til að komast upp í 2. sæti, með betri markatölu en Manchester City sem mætir toppliði Liverpool á sunnudag. Brighton og City eru með 23 stig, stigi meira en Chelsea og Arsenal, en Liverpool er með 31 stig á toppnum. Southampton er enn neðst með aðeins fimm stig, fjórum stigum frá næsta örugga sæti.
Enski boltinn Mest lesið Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Formúla 1 Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Körfubolti United tilbúið að tapa miklu á Højlund Enski boltinn Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Sport Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Enski boltinn Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu Handbolti Marta mætti og bjargaði Brasilíu Fótbolti Þessir þurfa að heilla Amorim Enski boltinn Tók Ara ekki nema tvær mínútur að skora Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Sænska landsliðskonan Zigiotti til liðs við Rauðu djöflana Sjáðu mörkin fjögur hjá United í nótt Arsenal skoraði ekki og tapaði í fyrsta leik Gyokeres Fjórtán er vinsælasta númer sumarsins Eigendur Liverpool eyða meira í Isak en í að kaupa fótboltafélag í Madrid Isak æfir hjá Orra Steini og félögum Breyttir tímar hjá Man. United: Höjlund skoraði í stórsigri Brady í Birmingham þáttum: Efaðist strax um Rooney og kallaði leikmennina lata Šeško nú helsta skotmark Rauðu djöflanna Sjá meira