Hetjumark hrifsað af Mikael og félögum í blálokin Sindri Sverrisson skrifar 3. nóvember 2024 21:56 Lautaro Martinez skoraði eina gilda markið á San Siro í kvöld. Getty/Jonathan Moscrop Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson og félagar í Venezia voru nálægt því að krækja í stig gegn stórliði Inter á San Siro í kvöld, í ítölsku A-deildinni í fótbolta. Inter vann þó, 1-0.
Inter var mun betri aðilinn í leiknum en gekk illa að koma boltanum í markið. Henrikh Mkhitaryan virtist reyndar hafa komið liðinu yfir í upphafi seinni hálfleiks en markið var dæmt af vegna rangstöðu, eftir myndbandsskoðun. Inter náði hins vegar að komast yfir á 65. mínútu þegar Lautaro Martinez skallaði boltann í netið, eftir fyrirgjöf frá Federico Dimarco. Venezia þurfti því jöfnunarmark og var Mikael Egill settur inn á þegar korter var til leiksloka. Annar varamaður, Marin Sverko, náði svo að skora rétt áður en flautað var til leiksloka, eða á sjöundu mínútu uppbótartíma. Eftir myndbandsskoðun var markið hins vegar á endanum dæmt af, vegna hendi, og Inter gat því fagnað eins marks sigri. Inter komst með sigrinum upp um tvö sæti, í 2. sæti deildarinnar, og er nú með 24 stig eftir 11 leiki, stigi á eftir toppliði Napoli. Venezia er hins vegar komið í þriðja neðsta sæti, fallsæti, með átta stig eða tveimur stigum meira en botnlið Genoa sem á leik til góða.
Ítalski boltinn Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn Tottenham - Liverpool | Meistararnir mæta til leiks án Salah Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Fleiri fréttir Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Tottenham - Liverpool | Meistararnir mæta til leiks án Salah Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Sjá meira