Skaðinn skeður í hálfleik hjá Magdeburg Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. júní 2024 14:47 Gísli Þorgeir Kristjánsson og Bennet Wiegert, þjálfari Magdeburg, fórna höndum. getty/Christof Koepsel Íslendingaliðið Magdeburg laut í lægra haldi fyrir Kiel, 28-32, í leiknum um 3. sætið á úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag.
Magdeburg tapaði fyrir Álaborg í undanúrslitunum í gær, 26-28, og það virtist sitja í leikmönnum liðsins, allavega í fyrri hálfleik. Þá var Kiel miklu sterkari aðilinn og var með níu marka forskot þegar liðin gengu til búningsherbergja. Leikmenn Magdeburg tóku sig saman í andlitinu í seinni hálfleik og söxuðu á forskot Kiel. Munurinn varð þó aldrei minni en þrjú mörk og sigur Kiel var ekki í mikilli hættu. Á endanum munaði fjórum mörkum á liðunum, 28-32, og Magdeburg fer því medalíulaust frá Köln. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg og var næstmarkahæstur í liðinu á eftir Lukas Mertens sem skoraði átta mörk. Ómar Ingi Magnússon skoraði þrjú mörk fyrir Magdeburg og Janus Daði Smárason skoraði tvö í sínum síðasta leik fyrir félagið. Hann gengur í raðir Pick Szeged í Ungverjalandi í sumar. Þetta var síðasti leikur Magdeburg á löngu, ströngu og gjöfulu tímabili. Liðið vann þýsku úrvalsdeildina, bikarkeppnina og HM félagsliða.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Sjá meira