Tveir leikir á Akureyri og bikarmeistararnir lentu á móti Fylki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. maí 2024 12:23 Víkingar hafa verið duglegir að vinna Mjólkurbikarinn undanfarin ár. Vísir/Hulda Margrét Dregið var í dag í átta liða úrslit Mjólkurbikarsins í fótbolta hjá báðum kynjum og það verða tveir Bestu deildar slagir hjá bæði körlum og konum. Átta liða úrslitin eiga að vera spiluð 11. og 12. júní í kvennaflokki og 12. og 13. júní í karlaflokki. Það verða krýndir nýir bikarmeistarar í kvennaflokki þar sem bikarmeistarar Víkings duttu út á móti Aftureldingu í sextán liða úrslitunum. Bikarmeistarar Víkings í karlaflokki eru aftur á móti enn á lífi í keppninni en þeir hafa unnið síðustu fjóra bikarúrslitaleiki. Breiðablik, Valur og Þór/KA eru þrjú efstu liðin í Bestu deildinni en þau sluppu við hvert annað í drættinum. Bestu deildar slagirnir eru tveir, annars vegar leikur Breiðabliks og Keflavíkur og hins vegar leikur FH og Þór/KA. Lengjudeildarlið Grindavíkur og Aftureldingar fá bæði heimaleiki en Grindvíkingar fá topplið Vals í heimsókn en Mosfellingar taka á móti Þrótti. Bikarmeistarar Víkings fá Fylki í heimsókn í karlaflokki og Valsmenn heimsækja Lengjudeildarlið Keflavíkur. Keflavík hefur slegið út Bestu deildarlið Breiðabliks og ÍA til þessa í keppninni. Víkingur-Fylkir er annar af tveimur Bestu deildar slögum átta liða úrslitanna en hinn verður á milli KA og Fram fyrir norðan. Akureyrarliðin fengu því bæði heimaleik, því Lengjudeildarlið Þórs frá Akureyri fær heimaleik á móti Stjörnunni.
Átta liða úrslitin eiga að vera spiluð 11. og 12. júní í kvennaflokki og 12. og 13. júní í karlaflokki. Það verða krýndir nýir bikarmeistarar í kvennaflokki þar sem bikarmeistarar Víkings duttu út á móti Aftureldingu í sextán liða úrslitunum. Bikarmeistarar Víkings í karlaflokki eru aftur á móti enn á lífi í keppninni en þeir hafa unnið síðustu fjóra bikarúrslitaleiki. Breiðablik, Valur og Þór/KA eru þrjú efstu liðin í Bestu deildinni en þau sluppu við hvert annað í drættinum. Bestu deildar slagirnir eru tveir, annars vegar leikur Breiðabliks og Keflavíkur og hins vegar leikur FH og Þór/KA. Lengjudeildarlið Grindavíkur og Aftureldingar fá bæði heimaleiki en Grindvíkingar fá topplið Vals í heimsókn en Mosfellingar taka á móti Þrótti. Bikarmeistarar Víkings fá Fylki í heimsókn í karlaflokki og Valsmenn heimsækja Lengjudeildarlið Keflavíkur. Keflavík hefur slegið út Bestu deildarlið Breiðabliks og ÍA til þessa í keppninni. Víkingur-Fylkir er annar af tveimur Bestu deildar slögum átta liða úrslitanna en hinn verður á milli KA og Fram fyrir norðan. Akureyrarliðin fengu því bæði heimaleik, því Lengjudeildarlið Þórs frá Akureyri fær heimaleik á móti Stjörnunni. Átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna: Breiðablik-Keflavík Afturelding-Þróttur R. Grindavík-Valur FH-Þór/KA - Átta liða úrslit Mjólkurbikars karla: Víkingur R.-Fylkir Keflavík-Valur KA-Fram Þór Akureyri-Stjarnan
Átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna: Breiðablik-Keflavík Afturelding-Þróttur R. Grindavík-Valur FH-Þór/KA - Átta liða úrslit Mjólkurbikars karla: Víkingur R.-Fylkir Keflavík-Valur KA-Fram Þór Akureyri-Stjarnan
Mjólkurbikar karla Mjólkurbikar kvenna Mest lesið Åge Hareide látinn Fótbolti Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Strasbourg - Breiðablik | Tekst Blikum að tryggja sig áfram? Fótbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Keflavík - Njarðvík 93-83 | Montrétturinn Keflvíkinga Körfubolti ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti Körfubolti Fleiri fréttir Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Sjá meira