Spenna vegna talna og dómarar fylgjandi sniðgöngu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. mars 2024 10:45 Hera Björk fagnar sigri. Við hlið hennar er Diljá Pétursdóttir sem var fulltrúi Íslands í Eurovision í fyrra. Vísir/Hulda Margrét Spennan er mikil meðal fjölmargra landsmanna að sjá kosningatölurnar úr Söngvakeppni Ríkisútvarpsins frá því á laugardagskvöld. Fullyrt er að galli í kosningakerfinu hafi ekki haft áhrif á niðurstöðu keppninnar. Fulltrúar í dómnefnd RÚV eru meðal þeirra sem vilja sniðganga keppnina.
Um fátt annað hefur verið rætt á samfélagsmiðlum síðan úrslitin urðu ljós í Söngvakeppninni á laugardagskvöldið. Hera Björk og Bashar Murad komust í Einvígið að lokinni fyrri símakosninga. Eftir því sem Vísir kemst næst naut framlag Bashar hylli dómnefndar sem hafði helmingsvægi á móti atkvæðum í símakosningu í fyrri umferðinni þar sem kosið var á milli fimm laga. Sjö tónlistarspekúlantar skipuðu dómnefndina. Þeirra á meðal tónlistarkonan Elín Hall. Um það leyti sem úrslitin voru ljós, að Hera hefði sigrað, birti Elín mynd af Bashar á Instagram-reikningi sínum og svo tíst þar sem hún tók undir þá skoðun að sniðganga ætti Eurovision vegna úrslitanna. Elín Hall í dómnefndinni birti þessar myndir á Instagram-reikningi sínum eftir að ljóst var að Bashar yrði ekki framlag Íslands. Þá lækaði Sigríður Beinteinsdóttir, annar meðlimur dómnefndar og Eurovision-goðsögn, pistil Bergsteins Björgúlfssonar kvikmyndatökumanns þess efnis að ekki sé í boði fyrir Ísland að taka þátt í Eurovision í ár. Hera Björk og Bashar tóku atkvæði dómnefndar og símakosningu með sér í einvígið svonefnda. Þar virðist Hera hafa haft nokkuð afgerandi sigur miðað við fyrstu tölur. Hins vegar hefur komið í ljós að meðal annars vegna galla á kosningaappinu RÚV-stjörnur þá voru einhver atkvæði ætluð Bashar sem fóru til Heru. Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar, tjáði fréttastofu á laugardagskvöldið að búið væri að útiloka að meintur galli hefði áhrif á niðurstöðuna. Hera væri sigurvegari. Hera hefur lýst því yfir að ætla að keppa í Malmö í maí líkt og Bashar gerði í aðdraganda keppninnar. Aðrir keppendur höfðu ekki verið jafn skýrir í yfirlýsingum sínum. Um fimm hundruð tónlistarmenn höfðu krafist sniðgöngu RÚV á Eurovision í Malmö þar sem Ísrael yrði á meðal keppenda. Minna heyrðist í þeim hópi þegar ljóst var að Palestínumaður væri á meðal þeirra sem kepptu um að verða fulltrúi Íslands. Daníel Ágúst, Magga Stína og Páll Óskar voru á meðal á sjötta hundrað tónlistarfólks sem hvatti til sniðgöngu.Vísir/Sigurjón Birgir Örn Steinarsson, Biggi Maus, var á meðal þeirra tónlistarmanna sem skiptu um skoðun. Stukku á þann vagn að það væri sterkari rödd að senda Palestínumann til keppni heldur en að sniðganga. Eftir að Bashar hafnað í öðru sæti hefur krafan um sniðgöngu vaknað víða á nýjan leik. Jafnvel heyrist sú krafa að Hera eigi að stíga til hliðar og bjóða Bashar plássið sitt. Reyndar er ekki útilokað að Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni en nokkur styr er um framlag Ísraela vegna meintra pólitískra skilaboða í framlagi þeirra. Bashar og teymi hans hafa krafist þess að óháðir aðilar verði fengnir til að gera úttekt á kosningunni á laugardagskvöldið. Þeir vilja að símakosningin verði endurtekin. Rúnar Freyr segir að skoðun á kosningunni sé í gangi með samstarfsaðilum. Að þeirri skoðun lokinni sé von á yfirlýsingu frá RÚV vegna málsins. Tölurnar voru birtar um tíuleytið í fyrra en óvíst er hve mikil töf verður á birtingu talnanna vegna gallans á kosningakerfinu. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands í Laugardalshöll á laugardagskvöldið.vísir/Hulda Margrét Þá verður áhugavert að sjá hve mörg heildaratkvæðin á laugardagskvöldið voru. Eitt atkvæði kostaði 184 krónur og gat hver og einn kosið fjörutíu sinnum í hvorri umferð. Tuttugu sinnum í síma, meða símtali eða SMS-i, og tuttugu sinnum í RÚV - stjörnur appinu sem virðist ekki eiga fimm stjörnur skildar fyrir frammistöðu sína. Þannig gat hver og einn greitt atkvæði fyrir 14.720 krónur.
Eurovision Ríkisútvarpið Tengdar fréttir Bubbi óttast púðurtunnu rasismans Bubbi Morthens er þungt hugsi yfir þeim gífuryrðum sem fallið hafa á samfélagsmiðlum um helgina í tengslum við Söngvakeppni Ríkisútvarpsins. Hera Björk stóð uppi sem sigurvegari eftir baráttu við Bashar Murad. Lokatölur eru óbirtar og sitt sýnist hverjum um niðurstöðuna. 4. mars 2024 09:07 Texta Október-regns breytt að kröfu forseta Ísrael Ísraelar hafa samþykkt að breyta texta lagsins „October Rain“ sem þykir líklegast til að verða framlag landsins í Eurovision í ár. Um er að ræða ballöðu sem sungin er af Eden Golan og virðist fjalla um árás Hamas á byggðir Ísraelsmanna 7. október síðastliðinn. 4. mars 2024 07:17 Réttlæti ekki hvernig sum hafi leyft sér að tala um Heru Alexandra Briem borgarfulltrúi segir að það hefðu verið sterk skilaboð að senda Bashar Murad út til Malmö að keppa í Eurovision í ár. Vegna úrslita Söngvakeppninnar í gærkvöldi telur Alexandra réttast að sniðganga keppnina. 3. mars 2024 12:00 Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira
Bubbi óttast púðurtunnu rasismans Bubbi Morthens er þungt hugsi yfir þeim gífuryrðum sem fallið hafa á samfélagsmiðlum um helgina í tengslum við Söngvakeppni Ríkisútvarpsins. Hera Björk stóð uppi sem sigurvegari eftir baráttu við Bashar Murad. Lokatölur eru óbirtar og sitt sýnist hverjum um niðurstöðuna. 4. mars 2024 09:07
Texta Október-regns breytt að kröfu forseta Ísrael Ísraelar hafa samþykkt að breyta texta lagsins „October Rain“ sem þykir líklegast til að verða framlag landsins í Eurovision í ár. Um er að ræða ballöðu sem sungin er af Eden Golan og virðist fjalla um árás Hamas á byggðir Ísraelsmanna 7. október síðastliðinn. 4. mars 2024 07:17
Réttlæti ekki hvernig sum hafi leyft sér að tala um Heru Alexandra Briem borgarfulltrúi segir að það hefðu verið sterk skilaboð að senda Bashar Murad út til Malmö að keppa í Eurovision í ár. Vegna úrslita Söngvakeppninnar í gærkvöldi telur Alexandra réttast að sniðganga keppnina. 3. mars 2024 12:00