Októberspá Siggu Kling: Þú hefur lukkuna með þér Sigga Kling skrifar 6. október 2023 06:00 Elsku Vatnsberinn minn, þú skalt skoða þessa Chi orku sem er að safnast í kringum þig og til þín. Í henni er falið svo mikið. Að hlusta á sjóinn, jörðina því hún andar og er að sjálfsögðu hin mesta orka, himininn og hamingjuna sem er svo sannarlega hjá þér, þú ert búin að velta mikið fyrir þér hvað er hamingjan og hvernig næ ég henni.
Vatnsberinn er frá 20. janúar til 18. febrúar. Þú ert með hamingjuna, láttu þér verða það að blessun. Ekki fara illa með neinn þó að þú getir það og hreinsaðu samviskuna, þú getur það. Þú þarft ekki að leita lengra heldur en að skoða þína nánustu og sjálfan þig, þar býr hún. Það er mikilvægt að vinna einhversskonar sjálfboða starf á þessum tíma hvort sem það er að taka til hjá ömmu þinni eða fara í Fjölskylduhjálpina og gefa bakstur eða mat. Þú þarf að virkja í þér pollýönuna eins og ég segi stundum við sjálfa mig, „Sigga þú býrð ekki í Úkraínu er það“. Með þeim orðum verður það léttvægt allt sem ég er að ganga í gegnum. Þú ert bara að læra, þú baðst um það, í skóla jafnvel finnst manni asnalegt að læra stærðfræði eða dönsku, en þú hefur það afl að sjá alla litina í réttu ljósi og vera þakklátur þó að þú hafir synt á móti straumnum oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Klippa: Októberspá Siggu Kling - Vatnsberinn Ef þú ert ekki sannur sjálfum þér og liggur á leyndarmáli sem gæti farið illa með þig skaltu vita að það borgar sig ekki að hafa nein lík grafin í bakgarðinum, því orkan er þannig að ólíklegustu hlutir koma í ljós. Það eru svo margir í þessu merki sem storma í átt að friðinum og núna er allt að snúast á þessari vatnsberaöld sem er þín. Þá gerist það að allt rusl fer á yfirborðið og þú veist að þú ert jarðengill og orðið engill þýðir sendiboði svo þessi tími þýðir að þú ert sendur til að hjálpa mannkyninu. Gerðu þig sterkari og sterkari þá verður þér send vitneskja um allt sem þig langar að vita. Þú getur byrjað á einföldum hlut eins og að sjá fyrir þér eitthvað, hvort sem það er jakki sem þig langar í eða bara eitthvað stærra, þá birtist það eða möguleikinn til að afla þess. Að vera sjálfselskur er fallegt orð því það þýðir að elska sjálfan sig, með því byggir þú upp þennan sterka engil sem býr í þér. Það er búið að vera mjög mikið að gerast á þessu ári 2023 og hafðu það sterkt í minni að þegar nýtt tungl myndast þá hefur þú lukkuna með þér, en ef þú tekur of sterkar ákvarðanir núna þá gætu þær orðið þér flóknar. 28. október er fullt tungl í nautsmerkinu það er tungl tilfinninga, friðar og jafnvægis, eftir því sem þú tengist betur öllu því jafnvægi sem heimurinn er að gefa þér, þá skilur þú að þú ert staddur í matrixi og þá sérðu að þú hefur mikil völd. Beittu því sem þú hefur vel, þá verður þú óstöðvandi. Í ástinni mun allt ganga eins og best verður á kosið svo vertu ekki í neinum fíflagangi þar. Knús og kossar, Sigga Kling Hilmir Snær Guðnason, leikari, 24. janúar Volodymyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, 25.janúar Ellen Degeneres, grínisti 26. janúar Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, 26. janúar Paul Newman, leikari, 26. janúar José Mourinho, þjálfari í knattspyrnu, 26. janúar Oprah Winfrey, sjónvarpskona, 29. janúar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, 1.febrúar Christiano Ronaldo, knattspyrnumaður, 5. febrúar Yoko Ono, mynd- og tónlistarkona, 18. febrúar
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Lífið Mínútuþögn á minningarleik um Patrek Frey Lífið Varð milljón krónum ríkari í mátunarklefa á Tenerife Lífið Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tíska og hönnun Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Tónlist „Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Lífið Krakkaskaup fyrir fullorðna Gagnrýni Búið á tólf stöðum í tólf ára sambandi Lífið Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Lífið Yfirlýst lesbía Lífið Fleiri fréttir Mínútuþögn á minningarleik um Patrek Frey Varð milljón krónum ríkari í mátunarklefa á Tenerife Yfirlýst lesbía Búið á tólf stöðum í tólf ára sambandi Fjörugt Food and fun framundan „Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Eyddi öllu út beint eftir Ofurskálina Brynja Dan og Jóhann selja slotið eftir breytingar Listapör, dansfjölskylda og rjómi senunnar á Garðinum Fram, fram, framakonur Maturinn í Ofurskálinni: Vængirnir étnir í tonnatali Glæsilegustu bollur landsins ruku út Svona var hálfleiksatriði Bad Bunny: „Guð blessi Ameríku“ Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ Stjörnulífið: „Já, ég er klámfíkill“ Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Hamilton ætlar ekki að bruna Tímabilið sem flestir vilja gleyma Festist í lyftu í New York Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Sjá meira