Byssusýning Veiðisafnins um næstu helgi Karl Lúðvíksson skrifar 14. mars 2023 11:58 Byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri sem í ár verður í samvinnu við verslunina VEIÐIHORNIÐ og SKOTGRUND - Skotfélag Snæfellsnes verður haldin laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. mars 2023 frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri.
Ólafur og félagar í VEIÐIHORNINU sýna úrval skotvopna og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði, til sýnis og sölu. Kynntir verða rifflar frá Remington, Howa og Benelli, haglabyssur frá Fair, Remington, Stoeger, Benelli og Franchi, einnig sjónaukar frá Leoupold, Crimson Trace og Nikko Stirling ásamt hljóðdeyfum frá Stalon, endurhleðsluvörum frá Barnes, Remington, Frankford, Alliant og fl. Félagsmenn úr SKOTGRUND - Skotfélag Snæfellsnes verða með fjölbreitt úrval skotvopna til sýnis ásamt kynningu á starfsemi skotfélagsins. Kennir þar margra grasa og verður úrval skotvopna verður til sýnis, haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu tengdu skotveiðum m.a úr einkasöfnum. Einnig verða til sýnis skotvopn og munir frá Veiðisafninu og einkaaðilum, má þar nefna skotvopn frá Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá, Sveini Einarssyni frv.veiðistjóra, Sigmari B. Haukssyni, Braga frá Þverá og Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík og byssur smíðaðar af Jóni Þorsteinsyni frá Ólafsfirði svo eitthvað sé nefnt. Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið, aðgangseyrir er kr.1750.- fl. og 850.- kr. börn 6-12 ára.
Skotveiði Mest lesið Góður dagur í Elliðaánum í gær en rólegt í morgun Veiði Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði Lax að veiðast í Hítará þrátt fyrir erfið skilyrði Veiði 1.004 fiska vika í Veiðivötnum Veiði Meira af tölfræði í Eystri Rangá 2020 Veiði Lokatölur úr Veiðivötnum Veiði Ókeypis kastnámskeið fyrir krakkana Veiði Selá er við hundrað laxa markið Veiði Gæsaveiðin hófst í dag Veiði Laxar að sýna sig í Laxá í Leirársveit Veiði