Nálgast markmiðið óðfluga Bjarki Sigurðsson og Máni Snær Þorláksson skrifa 10. mars 2023 18:55 Sigurjón Ernir, Halldór og Bergur munu vera á fullu næsta sólarhringinn. Þrír vinir ætla að hjóla, skíða og róa 350 kílómetra í Grafarholtinu næstu 24 tímana. Einn þeirra segir þá félagana ekki ætla að hætta nema eitthvað klikki, þó sé þunn lína á milli þrjósku og heimsku. Hann óttast mest hvað gerist við gripin á höndunum. Hægt verður að fylgjast með þeim félögum í beinni útsendingu á Stöð 2 Vísi.
Bergur Vilhjálmsson, Sigurjón Ernir Sturluson og Halldór Ragnar Guðjónsson hófust handa klukkan sjö í gærkvöldi. Um er að ræða svokallað Concept Iron Man því hann fer fram innanhúss á líkamsræktarvélum, til dæmis hlaupabretti og skíðavél. View this post on Instagram A post shared by Sigurjo n Ernir Sturluson (@sigurjonernir) Í samtali við fréttastofu segir Sigurjón þá félagana fera í fantaformi en þeir æfa fjölbreyttar æfingar á hverjum einasta degi. „Við erum í góðu alhliða formi. Ég er aðeins öðruvísi en þeir, ég er einn Ultra-vitleysinga á Íslandi. Þannig ég hef gert margar áskoranir sem telja margar marga klukkutíma. Ég hef alveg farið 150-160 kílómetra í samfelldu hlaupi. Ég þekki vel hvað er að fara djúpt inn í þennan helli,“ segir Sigurjón. Á meðan þeir eru að næsta sólarhringinn verður hægt að styrkja þá en allt rennur óskipt til Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Pabbi Sigurjóns lést úr krabbameini en honum þykir það vera mikil aukning í krabbameini hjá ungu fólki. „Stelpur frá 25 upp í 40, 50 sem mér finnst hálf óhugnanlegt. Þetta hefur alltaf verið meira hjá eldra fólki en það er svo sem alveg sama hvort það sé sykursýkin eða hvað það er, þetta er alltaf að færast neðar og neðar,“ segir Sigurjón. Þá veðrur einnig uppboð á reiðhjóli sem mun standa yfir alveg fram til klukkan 13 á mánudaginn. Hæsta boð rennur óskipt til Krafts. Styrktarsjóður Krafts: Kennitala: 571199-3009 Reikningsnúmer: 327-26-112233 AUR: @kraftur Hann segist ekki vera hræddur við að sofna en það sem hann óttast mest er að gripið á höndunum fari til fjandans, já og rassinn. „Óþægilegast við þetta verður gripið og rassinn. Það getur verið mikið nudd og jafnvel að rassinn klemmist eitthvað og svoleiðis. Rasskinnarnar fara í hvora aðra og svona. Það verður ábyggilega það erfiðasta við þetta, óþægindin sem fylgja þessum stöðum,“ segir Sigurjón. Svefninn fyrir áskorunina og mataræðið fyrir og á meðan hún er í gangi eru mikilvæg atriði. Þeir munu einungis borða hreint mataræði allan tímann, til dæmis kjöt, egg, fisk, ávexti og grænmeti. Endurheimtin verður erfið en það er oft ekki fyrr en viku eftir svona áskorun sem líkaminn finnur virkilega fyrir henni. „Nú er ég að þróa verkefni sem ég hef aldrei gert, varðandi hvað þetta er þægilegt þannig lagað séð, hraðinn á þessu. Þetta mun aldrei reyna á öndun og við verðum aldrei að púla það mikið að við stöndum á öndinni. Þetta verður alltaf þægilegu hraði. það verður nýtt fyrir mér að sjá hvernig endurheimt er eftir svona lagað,“ segir Sigurjón. Í spilaranum hér fyrir neðan verður hægt að fylgjast með áskoruninni. Einnig er hægt að fylgjast með á Instagram-síðunni hans Sigurjóns.
Hlaup Mest lesið Eitt frumlegasta hús Reykjavíkur á sölu Lífið Sjóðheitt listapar selur smart einbýli Lífið Einfalt ráð til að venja barn strax af bleyju Lífið Kjánalegar klisjur og kærulausir kappar Gagnrýni Stjarna úr Married at First Sight látin Bíó og sjónvarp Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Menning Tónlistarpar á von á sumarbarni Lífið „Heimurinn bara kollvarpaðist“ Lífið Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Tónlist Þungunarrof megi vera auðvelt val Lífið Fleiri fréttir Kynusli, ærslagangur og nasistar í kjallaranum Sveppi og Sigurður tignarlegir aftur á bak Einfalt ráð til að venja barn strax af bleyju Þungunarrof megi vera auðvelt val Eitt frumlegasta hús Reykjavíkur á sölu „Heimurinn bara kollvarpaðist“ Tónlistarpar á von á sumarbarni Sjóðheitt listapar selur smart einbýli Skálmöld gæddi sér á hráefni sögulegs „ógeðsdrykkjar“ Annie Mist gaf prinsinum nafn Geislandi gellur í þrumustuði á Edition „Kynslóðin sem ól okkur upp er meira og minna meðvirk” Getur varla horft á sjálfan sig eftir eineltið Stjörnulífið: „Bráðum fær hann að afmeyja mig“ Fólk með kynlífsvanda fær ekki þá hjálp sem það þarf „Eruð þið í alvörunni að handtaka Justin Timberlake?“ Kio Briggs hágrét á tökustað Engla alheimsins Lærimeistari Charlie Kirk og faðir klappstýru nútímans látinn Krakkatía vikunnar: Mario, vöfflur og ólöghlýðinn kisi Ein veirusýking sneri öllu lífinu á hvolf Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Nicholas Brendon er látinn Fór lögblind í gegnum doktorsnám Landsliðsmaður í ADHD sem lifir á húmornum Fréttatía vikunnar: Vextir og verðlaun á verðlaun ofan Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Alaska 1867 er nýliði ársins Ástrós og Adam eiga von á öðru Gjörbreytti íbúðinni með einni tilfærslu Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Sjá meira