Toppliðið úr leik eftir tap gegn botnliðinu í vítaspyrnukeppni Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. janúar 2023 22:55 Cremonese er á leið í átta liða úrslit Coppa Italia eftir óvæntan sigur gegn Napoli. Francesco Pecoraro/Getty Images Napoli, topplið ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, er fallið úr leik ítölsku bikarkeppninnar Coppa Italia eftir tap gegn botnliði deildarinnar, Cremonese, í vítaspyrnukeppni.
Það voru gestirnir í Cremonese sem voru fyrri til að brjóta ísinn þegar liðið komst í forystu eftir tæplega tuttugu mínútna leik. Heimamenn svöruðu þó með tveimur mörkum með stuttu millibili fyrir hálfleikshléið og staðan því 2-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Það stefndi allt í að það yrðu lokatölur leiksins, en gestirnir í Cremonese gáfust ekki upp og jöfnuðu metin þegar um þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja leiknum. Gestirnir þurftu svo að spila stóran hluta framlengingarinnar manni færri eftir að Leonardo Sernicola nældi sér í sitt annað gula spjald og þar með rautt þegar enn voru tuttugu mínútur eftir af framlengingunni. Það kom þó ekki að sök og enn var staðan jöfn að framlengingunni lokinni. Því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara. Þar skoruðu gestirnir úr öllum sínum fimm spyrnum, en Stanislav Lobotka misnotaði fjórðu spyrnu Napoli og þar með voru úrslitin ráðin. Cremonese er á leið í átta liða úrslit Coppa Italia á kostnað Napoli þar sem liðið mætir Roma.
Ítalski boltinn Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Handbolti Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Fleiri fréttir Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Sjá meira