Fuell Fllow rafmótorhjólið nálgast markað Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 5. desember 2022 07:01 Fuell Fllow. Eftir að hafa fyrst verið kynnt til sögunnar í apríl árið 2019 er Fuell Fllow loks að nálgast markað. Opnað hefur verið fyrir pantanir á hjólinu.
Heimsfarandurinn og vöruskortur hafa haft veruleg áhrif á starfsemi Fuell sem og annarra. Markmið Fuell er að ná inn 3000 forpöntunum fyrir Fllow hjólið, hver forpöntun kostar 200 dollara eða um 29 þúsund krónur. Takist það mun fara fram hópfjármögnun til að setja hjólið í framleiðslu. Markmiðið er að hefja afhendingar árið 2024. Fllow notast við einkaleyfavarið afturhjóladrif sem kallað er Transverse Flux Motor. Það er beintengt, engin keðja eða reim. Aflmesta hjólið verður 47 hestöfl, með niður í 15 hestafla týpu fáanlega. Meðfylgjandi er myndband af YouTube-rásinni Electric Vehicle Space. Rafhlaðan er 10kWh og vigtar hjólið um 180 kg. Drægnin er um 240 km. Rafhlöðuna er hægt að hlaða á um 30 mínútum. Veljir þú að hlaða frá 20% hleðslu upp í 90% er hægt að hlaða á um 15 mínútum samkvæmt Fuell. Hjólið er hlaðið búnaði, svo sem snjall ABS hemlum, göngu- og bakk aðstoð, spólvörn, blindpunktsaðvörun og árekstrarviðvörun að framan og aftan.
Vistvænir bílar Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent