Tilþrifin: Bl1ick nær ás og NÚ skellti sér á toppinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. nóvember 2022 10:46 Blick sýndi frábær tilþrif er NÚ skellti sér á topp Ljósleiðaradeildarinnar í gær. Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það bl1ick í liði NÚ sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.
NÚ mætti botnliði Ten5ion þegar níundu umferð Ljósleiðaradeildarinnar lauk í gærkvöldi með þremur leikjum. NÚ og Ten5ion að berjast á sitthvorum enda töflunnar, og því kom það líklega fáum á óvart að það voru liðsmenn NÚ sem höfðu betur, 16-10. Sigurinn lyfti liðinu á topp Ljósleiðaradeildarinnar og tap Þórs gegn Dusty í seinasta leik gærkvöldsins þýðir það að NÚ heldur toppsætinu í það minnsta fram yfir helgi. Ekki nóg með það að hrifsa til sín toppsætið í Ljósleiðaradeildinni, heldur átti liðið einnig tilþrif gærkvöldsins. Það er eins og áður segir bl1ick sem á heiðurinn af tilþrifunum, en hann tók út alla meðlimi Ten5ion á einu bretti í stöðunni 9-5, NÚ í vil. Klippa: Elko tilþrifin: Bl1ick nær ás og NÚ skellti sér á toppinn
Rafíþróttir Ljósleiðaradeildin Mest lesið Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Róbert hættir hjá HSÍ Handbolti Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Handbolti Sjáðu dramatíkina á Anfield: Van Dijk skoraði og Simeone brjálaðist Fótbolti „Þessi viðbrögð eru auðvitað ekki í lagi“ Fótbolti Enduðu á nærbuxunum og gátu ekki flogið Fótbolti „Maður spyr sig hvar maður á heppnina inni“ Íslenski boltinn Vann Ólympíubrons en ætlar að keppa á Steraleikunum og slá heimsmetið Sport Wildcard hugleiðingar Fantasýn: Haaland inn, Salah út og bíða með Isak Enski boltinn Fimm sigurmörk á síðustu sjö mínútunum Enski boltinn