Enginn áhugi á Ronaldo sem verður um kyrrt hjá United Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. október 2022 13:30 Cristiano Ronaldo er aðeins kominn með eitt mark á tímabilinu. getty/Manchester United Allt bendir til þess að Cristiano Ronaldo klári tímabilið með Manchester United því engin af stóru liðunum í Evrópu vilja fá hann.
Samkvæmt heimildum ESPN eru hverfandi líkur á því að Ronaldo fari frá United í janúar þar sem áhuginn á portúgölsku markamaskínunni er takmarkaður. Manchester United are confident Cristiano Ronaldo will stay at the club in January mainly because of a lack of interest in him, sources told @RobDawsonESPN pic.twitter.com/cSnvDt0uAU— ESPN UK (@ESPNUK) October 7, 2022 Ronaldo hefur ekki átt fast sæti í liði United á tímabilinu og ekki sýnt sínar bestu hliðar þegar hann hefur fengið tækifæri. Hann var í byrjunarliðinu gegn Omonia í Evrópudeildinni í gær og lagði upp þriðja mark United fyrir Marcus Rashford. Ronaldo fór hins vegar illa með nokkur færi og hann hefur aðeins skorað eitt mark í vetur. Það kom úr vítaspyrnu gegn Sherriff Tiraspol í Evrópudeildinni. Ronaldo vildi fara frá United í sumar en áhuginn á honum frá stærstu liðum Evrópu var takmarkaður og ekkert tilboð frá þeim barst í leikmanninn. Og ef marka má frétt ESPN hefur áhuginn á Portúgalanum svo sannarlega ekki aukist. Ronaldo, sem er 37 ára, sneri aftur til United í fyrra og var markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili með 24 mörk í öllum keppnum. United vann Omonia, 2-3, í gær og er í 2. sæti E-riðils Evrópudeildarinnar með sex stig. Næsti leikur United er gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Dagskráin í dag: Messan, meistarar Hauka, píla og NFL-veisla Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira