Sagði að strákarnir hans Gerrards spiluðu á hraða snigilsins Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. október 2022 16:01 Steven Gerrard tók við Aston Villa um mitt síðasta tímabil. getty/Clive Brunskill Jesse Marsch, knattspyrnustjóri Leeds United, gagnrýndi leikstíl Aston Villa eftir markalaust jafntefli liðanna í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Leeds var manni færri nær allan seinni hálfleikinn eftir að Kólumbíumaðurinn Luis Sinisterra var rekinn af velli á 48. mínútu. Marsch var í leikbanni og fylgdist því með gangi mála úr stúkunni á Elland Road. Hann var ekki hrifinn af því sem hann sá og fannst Villa-menn tefja leikinn full mikið. „Ég finn mig nánast knúinn til að biðja stuðningsmennina afsökunar. Þeir fengu ekki skemmtilegan leik, heldur leik sem andstæðingurinn hægði á allt frá upphafsflauti og stuðningsmennirnir nutu þess ekki að koma á Elland Road eins og þeir ættu að gera,“ sagði Marsch. „Þetta er besta deild í heimi og stuðningsmenn okkar koma ekki hingað til að horfa á leik á hraða snigilsins.“ Steven Gerrard, stjóri Villa, gaf ekki mikið fyrir gagnrýni kollega síns. „Var hann ósáttur við tafir þeirra eftir að þeir misstu mann af velli? Þetta gengur í báðar áttir. Ég hef ekki áhuga á Jesse og skoðunum hans. Við gerum það sem til þarf. Ég hef bara áhuga á Villa.“ Leeds er með níu stig í 12. sæti deildarinnar en Villa í 14. sætinu með átta stig. Villa hefur leikið átta leiki en Leeds sjö.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira