Skytturnar skutu sér á toppinn með sigri á Brentford Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. september 2022 13:00 Gabriel Jesus skoraði eitt marka Arsenal í dag. Vísir/Getty Arsenal er komið aftur á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 3-0 sigur á Brentford í dag. Skytturnar áttu ekki í neinum vandræðum með Brentford en heimaliðið var langt frá sínu besta í dag. William Saliba kom Arsenal yfir með skalla eftir hornspyrnu Bukayo Saka á 17. mínútu. Rúmlega tíu mínútum síðar hafði Gabriel Jesus tvöfaldað forystuna og staðan 2-0 í hálfleik. Í þeim síðari bætti Fabio Vieira við þriðja markinu og þar við sat. Lokatölur 3-0 Arsenal í vil. Arsenal er á toppi deildarinnar með 18 stig eftir sjö leiki en þar á eftir kom Manchester City og Tottenham Hotspur með 17 stig. Brentford er í 9. sæti með níu stig. Enski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn