Skoraði beint úr horni á æfingu og endurtók leikinn gegn liði Jóns Daða Valur Páll Eiríksson skrifar 24. ágúst 2022 15:30 Leikmenn Villa fagna mögnuðu hornamarki Brasilíumannsins. Dave Howarth - CameraSport via Getty Images Douglas Luiz skoraði stórglæsilegt mark beint úr hornspyrnu er lið hans Aston Villa vann 4-1 sigur á Jóni Daða Böðvarssyni og félögum í Bolton Wanderers í enska deildabikarnum í gærkvöld.
Aston Villa hefur farið brösuglega af stað í ensku úrvalsdeildinni en liðið er með þrjú stig eftir þrjá leiki. Liðið tapaði fyrir nýliðum Bournemouth í fyrsta leik og fyrir Crystal Palace um helgina. Því var tækifæri fyrir liðið að rífa sjálfstraustið upp gegn C-deildarliði Bolton Wanderers í gær. Það fór ekki vel af stað er Dion Charles kom Bolton yfir á 24. mínútu en tólf mínútum síðar jafnaði Douglas Luiz metin með marki beint úr hornspyrnu. Just like we planned. @DGOficial pic.twitter.com/FcAoypy9mc— Aston Villa (@AVFCOfficial) August 24, 2022 Aston Villa birtir myndskeið af markinu á samfélagsmiðlum sínum í dag og hafa með því myndskeið af nákvæmlega eins marki sem Luiz skoraði á æfingu fyrir leikinn. Það ýtir stoðum undir það að Luiz hafi skotið viljandi úr spyrnunni. Staðan var 1-1 í hálfleik en mörk frá Danny Ings, Lucas Digne og Leon Bailey í síðari hálfleiknum tryggðu Villa 4-1 sigur og sæti í þriðju umferð bikarsins. Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson var ekki í leikmannahópi Bolton í gærkvöld.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira