Liverpool hefur lent átta sinnum 0-1 undir í síðustu tíu leikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2022 12:01 Mohamed Salah og félagar hafa gert sér lífið erfitt hvað eftir annað í síðustu leikjum með því að lenda 0-1 undir. Getty/Peter Byrne Liverpool er þegar fjórum stigum á eftir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni og samt eru aðeins tvær umferðir búnar. Liverpool hefur enn ekki tapað leik en liðið hefur heldur ekki unnið leik heldur. Fyrstu tveir leikirnir hafa endað með jafntefli á móti liðum Fulham og Crystal Palace. Báðir þessir leikir eiga það sameiginlegt með svo mörgum leikjum Liverpool að undanförnu að liðið lenti þar 0-1 undir. Reyndar virðist 32. mínútan vera stórhættuleg því fyrsta mark Fulham og mark Crystal Palace litu bæði dagsins ljós á þessari mínútu eftir rúmlega hálftíma leik. Í átta af síðustu tíu leikjum liðsins þá hafa mótherjar Liverpool skorað fyrsta mark leiksins og oftar en ekki gegn gangi leiksins eftir stórsókn Liverpool bar ekki árangur í upphafi leiks. Liverpool lyfti bikar í báðum þessum tveimur leikjum af þessum tíu þar sem liðið lenti ekki undir. Það var í 3-1 sigri á Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn og í sigrinum á Chelsea í úrslitaleik enska bikarsins en þar réðust úrslitin í vítakeppni eftir markalaust jafntefli. Liverpool hefur nú spilað sex leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni þar sem liðið fær á sig fyrsta mark leiksins og í fimm þeirra hefur markið komið í fyrri hálfleiknum. Hér fyrir neðan má sjá þessa tíu síðustu keppnisleiki Liverpool. Síðustu tíu keppnisleikir Liverpool liðsins: 1-1 jafntefli við Crystal Palace í deild: Lentu 0-1 undir á 32. mínútu 2-2 jafntefli við Fulham í deild: Lentu 0-1 undir á 32. mínútu 3-1 sigur á Manchester City í Meistarakeppni: Komust í 1-0 á 21. mínútu 0-1 tap fyrir Real Madrid í Meistaradeild: Lentu 0-1 undir á 59. mínútu 3-1 sigur á Wolves í deild: Lentu 0-1 undir á 3. mínútu 2-1 sigur á Southampton í deild: Lentu 0-1 undir á 13. mínútu 0-0 jafntefli við Chelsea í bikarúrslitum: 2-1 sigur á Aston Villa í deild: Lentu 0-1 undir á 13. mínútu 1-1 jafntefli við Tottenham í deild: Lentu 0-1 undir á 56. mínútu 3-2 sigur á Villarreal í Meistaradeild: Lentu 0-1 undir á 3. mínútu Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Glímdi við augnsjúkdóm Sport Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira
Liverpool hefur enn ekki tapað leik en liðið hefur heldur ekki unnið leik heldur. Fyrstu tveir leikirnir hafa endað með jafntefli á móti liðum Fulham og Crystal Palace. Báðir þessir leikir eiga það sameiginlegt með svo mörgum leikjum Liverpool að undanförnu að liðið lenti þar 0-1 undir. Reyndar virðist 32. mínútan vera stórhættuleg því fyrsta mark Fulham og mark Crystal Palace litu bæði dagsins ljós á þessari mínútu eftir rúmlega hálftíma leik. Í átta af síðustu tíu leikjum liðsins þá hafa mótherjar Liverpool skorað fyrsta mark leiksins og oftar en ekki gegn gangi leiksins eftir stórsókn Liverpool bar ekki árangur í upphafi leiks. Liverpool lyfti bikar í báðum þessum tveimur leikjum af þessum tíu þar sem liðið lenti ekki undir. Það var í 3-1 sigri á Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn og í sigrinum á Chelsea í úrslitaleik enska bikarsins en þar réðust úrslitin í vítakeppni eftir markalaust jafntefli. Liverpool hefur nú spilað sex leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni þar sem liðið fær á sig fyrsta mark leiksins og í fimm þeirra hefur markið komið í fyrri hálfleiknum. Hér fyrir neðan má sjá þessa tíu síðustu keppnisleiki Liverpool. Síðustu tíu keppnisleikir Liverpool liðsins: 1-1 jafntefli við Crystal Palace í deild: Lentu 0-1 undir á 32. mínútu 2-2 jafntefli við Fulham í deild: Lentu 0-1 undir á 32. mínútu 3-1 sigur á Manchester City í Meistarakeppni: Komust í 1-0 á 21. mínútu 0-1 tap fyrir Real Madrid í Meistaradeild: Lentu 0-1 undir á 59. mínútu 3-1 sigur á Wolves í deild: Lentu 0-1 undir á 3. mínútu 2-1 sigur á Southampton í deild: Lentu 0-1 undir á 13. mínútu 0-0 jafntefli við Chelsea í bikarúrslitum: 2-1 sigur á Aston Villa í deild: Lentu 0-1 undir á 13. mínútu 1-1 jafntefli við Tottenham í deild: Lentu 0-1 undir á 56. mínútu 3-2 sigur á Villarreal í Meistaradeild: Lentu 0-1 undir á 3. mínútu
Síðustu tíu keppnisleikir Liverpool liðsins: 1-1 jafntefli við Crystal Palace í deild: Lentu 0-1 undir á 32. mínútu 2-2 jafntefli við Fulham í deild: Lentu 0-1 undir á 32. mínútu 3-1 sigur á Manchester City í Meistarakeppni: Komust í 1-0 á 21. mínútu 0-1 tap fyrir Real Madrid í Meistaradeild: Lentu 0-1 undir á 59. mínútu 3-1 sigur á Wolves í deild: Lentu 0-1 undir á 3. mínútu 2-1 sigur á Southampton í deild: Lentu 0-1 undir á 13. mínútu 0-0 jafntefli við Chelsea í bikarúrslitum: 2-1 sigur á Aston Villa í deild: Lentu 0-1 undir á 13. mínútu 1-1 jafntefli við Tottenham í deild: Lentu 0-1 undir á 56. mínútu 3-2 sigur á Villarreal í Meistaradeild: Lentu 0-1 undir á 3. mínútu
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Glímdi við augnsjúkdóm Sport Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira