Haaland: Auðvitað er pressa Valur Páll Eiríksson skrifar 7. ágúst 2022 08:00 Mikil eftirvænting ríkir vegna frumraunar Erlings Haaland í ensku úrvalsdeildinni. Getty Erling Haaland mun líkelga spila fyrsta deildarleik sinn fyrir Englandsmeistara Manchester City er liðið fær West Ham United í heimsókn í fyrstu umferð ensk úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Hann segir pressu á sér að skora mörk.
Haaland kom til City frá Dortmund í sumar en mikils er vænst af Norðmanninum í Manchester-borg. Í viðtali við Alan Shearer, markahæsta leikmann í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, segir hann vissulega vera pressu á sér að skila mörkum fyrir þá bláklæddu. „Auðvitað fylgir pressa því að spila fyrir meistarana sem unnu deildina, en fyrir mér snýst þetta um að mæta á völlinn brosandi eins oft og ég get og reyna að njóta leiksins. Lífið fer hratt hjá og skyndilega getur ferlinum lokið,“ „Þú sérð það á föður mínum, skyndilega er þetta búið. Þetta snýst um að njóta hverrar mínútu, ég er heppinn að vinna við þetta og að vera hér. Ég verð að njóta þess,“ en þarna vísar Haaland í föður sinn, Alf-Inge Haaland, sem lék einnig með Manchester City, en þurfti að hætta snemma vegna þrálátra meiðsla. „Sem framherji verður þú að vera smá sjálfselskur en ekkert gleður mig meira en að gefa boltann á leikmann fyrir opnu marki og hann skorar,“ segir Haaland. Manchester City mætir West Ham á Etihad-vellinum í fyrsta leik sínum í deildinni klukkan 16:30 í dag.
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Fleiri fréttir „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Sjá meira